Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Blaðsíða 18
þriðjudagur 17. júlí 200718 Sport DV Fimm leikir fóru fram í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. KA og Þór mættust í nágrannaslag á Akureyri: Mikilvægur sigur KA-manna á erkifjendunum Stórleikur elleftu umferðar í 1. deild karla í knattspyrnu fór fram á Akureyri í gær þegar nágrannalið- in KA og Þór mættust á Akureyrar- velli. Sú var tíðin að Akureyrarliðin voru bæði í efstu deild en nú er öldin önnur. KA var fyrir leikinn í gær með sex stig í neðsta sæti deildarinnar og hafði aðeins unnið einn leik í tíu fyrstu leikjum liðsins í sumar. Þór var fyrir leikinn í gær í sjöunda sæti með tólf stig. KA fékk gullið tækifæri á 14. mín- útu til að ná forystu í leiknum þegar liðið fékk vítaspyrnu. Árni Kristinn Skaftason, markvörður Þórs, gerði sér hins vegar lítið fyrir og varði víta- spyrnuna. Á 38. mínútu skoraði svo Elmar Dan Sigþórsson eina mark leiksins með skalla og þar við sat. Þór sótti án afláts í síðari hálfleik en KA náði að halda marki sínu hreinu og inn- byrða mikilvægan sigur. Annar sigur KA á leiktíðinni í hús og liðið náði að koma sér upp úr neðsta sætinu. Pétur Ólafsson, þjálfari KA, var ánægður með þá baráttu sem læri- sveinar hans sýndu í leiknum í gær. „Við erum mjög ánægðir með þetta. Þetta var gríðarlega mikilvægur sig- ur hjá okkur. Við teljum að hann hafi verið sanngjarn því við klikkuðum á víti. Þó það hafi legið á okkur þá skapaðist engin stórhætta af því. Við erum stoltir af strákunum að hafa náð að rífa sig upp. Það er ekki auðvelt að rífa sig upp fyrir svona leik,“ sagði sáttur þjálfari KA-manna. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari Þórs, sagði að það væri erfitt að skora gegn liði sem spilar jafn neikvæð- an bolta og KA, eins og hann orðaði það. „Við sóttum á þá allan seinni hálfleikinn. Þrátt fyrir að þeir hafi klúðrað víti voru þeir ekki að gera neitt fyrir utan vítið og markið. En það er ekki alltaf betra liðið á vellin- um sem vinnur. Þetta virkaði hjá þeim. Þeir lágu til baka og uppskáru 1-0 sigur. Við verð- um að læra að klára leikina. Það að fá mark á sig gegn liðum eins og KA er bara mjög erfitt. Við erum að reyna að spila skemmtilegan sóknarbolta. En þegar maður fær á sig mark á móti svona liði sem spilar mjög neikvæð- an bolta, þá ertu bara í vandræðum,“ sagði Lárus Orri eftir leikinn. Þróttur tók á móti Reyni Sand- gerði á Valbjarnarvelli í gær. Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttara, þjálfaði lið Reynis á síðustu leiktíð og var því að mæta sínum fyrrverandi lærisvein- um. Skemmst er frá því að segja að Reynir sótti ekki gull í greipar Þróttara því heimamenn komust í 4-0 fyrir leikhlé með mörkum frá Rafni Andra Haraldssyni, Arnljóti Ástvaldssyni, Hirti Hjartarsyni úr vítaspyrnu og Magnúsi Má Lúð- víkssyni. Reynismenn klóruðu aðeins í bakkann í síðari hálfleik. Hafsteinn Friðriksson náði að minnka mun- inn í 4-1 með marki úr vítaspyrnu og Jóhann Magni Jóhannsson skor- aði annað mark Reynismanna áður en flautað var til leiksloka. 4-2 sigur Þróttar staðreynd og liðið í harðri baráttu um að komast upp um deild, á meðan Reynir berst fyrir lífi sínu. dagur@dv.is Skoraði eitt mark Magnús Már lúðvíksson skoraði fjórða mark þróttara í gær þegar liðið vann reyni frá Sandgerði 4-2. Breiðablik lék á alls oddi er liðið heimsótti Fylki í Árbæinn. Blikar skoruðu þrjú mörk á innan við hálftíma og gerðu hreinlega út af við afar dapra Fylkismenn. Fylkir tekinn í bakaríið 0 3 FYLKIR BREIÐABLIK Mörk: Gunnar Örn Jónsson (15.), Kristinn Steindórsson (22.), Kristinn Steindórsson (23.). 6 6 4 4 4 3 4 4 5 5 5 4 2 2 1 3 1 0 Fjalar Þorgeirsson Kristján Valdimarsson David Hannah Andrés M. Jóhannesson Víðir Leifsson (75.) Guðni R. Helgason Hermann Aðalgeirsson(45.) Valur F. Gíslason Halldór Hilmisson (45.) Haukur I. Guðnason Christian Christiansen Casper Jacobsen Srdjan Gasic Guðmann Þórisson Arnór S. Aðalsteinsson Árni K. Gunnarsson Gunnar Ö. Jónsson Arnar Grétarsson Prince Mathilda Kristinn Steindórsson Nenad Zivanovic Nenad Petrovic TÖLFRÆÐI SKOT AÐ MARKI SKOT Á MARKIÐ SKOT VARIN HORNSPYRNUR RANGSTAÐA GUL SPJÖLD RAUÐ SPJÖLD 13 7 3 4 1 1 0 7 7 7 6 7 8 7 8 8 7 7 VARAMENN: Albert Brynjarsson (45.) - 6, Peter Gravesen (45.) - 5, Mads Bierholm (75.). VARAMENN: Steinþór Freyr Þorsteinsson (68.) - 7, Olgeir Sigurðsson (86.). Dómari: Erlendur Eiríksson - 8 Áhorfendur: 964 Maður leiksins: Gunnar Örn Jónsson Jacobsen Fjalar Árni Guðmann Gasic Arnór Gunnar Arnar Petrovic Zivanovic KristinnPrince Guðni Hannah Valur F. Kristján Víðir HermannAndrés Halldór Christiansen Haukur Það var 20 stiga hiti og glampandi sól- skin í Árbænum þegar Fylkismenn tóku á móti Breiðabliki í gær. Leik- urinn var afar jafn fyrstu mínúturnar þó svo að Breiðabliksmenn hafi verið skeinuhættari í sóknarleik sínum. Var þar Gunnar Örn Jónsson greinilega búinn að taka vítamínið sitt vegna þess að hann virkaði afar öflugur í rispum sínum á miðjunni og hægri kantinum. Það var síðan á 15. mínútu sem umræddur Gunnar vann boltann eft- ir lítinn darraðardans á miðjunni hjá Fylkismönnum, tók á rás upp miðjan völlinn og skoraði laglega með föstu skoti niðri í vinstra hornið, fullkom- lega óverjandi fyrir Fjalar Þorgeirs- son. Það var síðan á 22. mínútu sem Kristinn Steindórsson jók muninn fyr- ir Breiðablik eftir að misheppnað skot frá Srdjan Gasic féll afar þægilega fyr- ir fætur hans án þess að Fylkisvörnin væri að stressa sig of mikið yfir því og einungis mínútu síðar skoraði hann þriðja mark Breiðabliks í jafmörgum skotum eftir fallega stungusendingu frá vinstri kantinum. Ótrúleg staða eftir aðeins tæplega hálftímaleik og nokkuð ljóst að and- lausir Fylkismenn þyrftu heldur bet- ur að spýta í lófana ef þeir ætluðu ein- faldlega ekki að láta niðurlægja sig enn frekar. Fylkismenn reyndu ólmir að svara fyrir sig og Christian Christi- ansen náði furðulega föstu skoti úr kyrrstöðu sem fór beint upp í mark- vinkilinn en Casper Jacobsen var vel staðsettur og blés ekki úr nös við að verja skotið. Það var síðan á 42. mín- útu sem Arnar Grétarsson átti fallega rispu upp miðjan völlinn og sendi leglega stungusendingu á Prince sem rúllaði föstum bolta á dauðafrí- an Kristin Steindórsson sem þrum- aði boltanum langt yfir af um það bil 1 meters færi. Fylkismenn eins og múmíur Leifur Garðarsson var augljós- lega ekki sátur við frammistöðu sinna manna í fyrri hálfleik og gerði tvær breytingar í hálfleik. Útaf fóru Her- mann Aðalgeirsson og Halldór Arn- ar Hilmisson og í staðinn komu Peter Gravesen og Albert Brynjar Ingason. Þetta virtist blása örlitlítilli baráttu í sóknarleik Fylkis og náði Albert strax að setja mark sitt á leikinn með góðu skoti en Casper Jacobsen var vel á verði og boltinn lenti í öruggum hrömmum hans. Þrátt fyrir að Fylkismenn hafi ver- ið ögn líflegri í byrjun seinni hálf- leiks virtust Breiðabliksmenn enn vera til alls líklegir og ógnuðu sókn- armenn þeirra í hvert skipti sem þeir sáu boltann. Gaman var að sjá að þrátt fyrir örugga forystu bökk- uðu Blikar ekki um hænufet og spil- uðu bullandi sóknarbolta þar sem aldrei voru fleiri en 6 leikmenn fyrir aftan boltann í upphafi sóknar. Hægt og rólega lak allt loft úr Fylkismönn- um og í lokin leit þetta meira út fyrir að vera létt æfing fyrir Blika en leik- ur í efstu deild. Áttu Blikar fjölda- margar marktilraunir og Fjalar Þor- geirs sýndi hvers megnugur hann er ásamt því að Blikar hreinlega nýttu færin sín ekki alveg nógu vel. „Það vakti engill yfir okkur“ Eftir leikinn voru þeir Gunnar Örn og Kristinn glaðir í bragði enda var þetta fyrsti leikur þeirra beggja í byrj- unarliði í sumar. Kristinn sem er að- eins sautján ára gamall sagði að nú væri nú varla við öðru að búast en að hann og Gunnar fengju örlítið fleiri tækifæri enda hafa þeir báðir skorað í tveimur leikjum í röð. „Maður verður náttúrulega bara að vona það besta. Við skoruðum báðir í síðasta leik og það á vel við okkur að spila svona ein- faldan sóknarleik. Núna verðum við bara að halda áfram á þessari braut.“ Gunnar Örn tók í í sama streng og tal- aði um að það hefði verið mikið um skotæfingar upp á síðkastið og það hefði gert þeim gott í leik eins og þess- um. Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis var hins vegar alls ekki sáttur við sína menn í þessum leik. „Við bara skit- um í brækurnar í fyrri hálfleik, það var jafnræði með liðunum og síðan kom þetta mark. Þá bara hrundi allt hjá okkur og við vorum gjörsamlega á hælunum allan fyrri hálfleik. Það var náttúrulega lítið um ljósa punkta í okkar leik, en kannski var Fjalar fínn í seinni hálfleik og síðan var náttúr- lega einhver verndarengill með okkur í seinni hálfleik. Við hefðum klárlega átt að tapa þessum leik mun stærra en 3–0.“ Með þessum sigri hirðir Breiðablik fimmta sætið af Fylkismönnum og er núna með 13 stig, einu stigi meira en Fylkir. Einstefna Breiðablik valtaði yfir Fylki í gær. Komst lítt áleiðis Fylkismenn sáu ekki til sólar í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.