Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1997, Qupperneq 4
4
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83/FYLGIRIT 35
Um forgangsröðun í
heilbrigðisþj ónustu
Skýrsla nefndar Læknafélags íslands
I. Inngangur
Nefnd Læknafélags íslands
Undanfarin ár hefur umræða um forgangsröð-
un íheilbrigðisþjónustu farið vaxandi. Astæðurn-
ar eru margar, svo sem hækkandi meðalaldur
þjóðarinnar og ný tækni sem aukið hefur mögu-
leika á meðferð sjúkdóma. Aukin þekking al-
mennings á nýrri tækni og meðferðarmöguleikum
eykur einnig kröfur um heilbrigðisþjónustu. A
sama tíma hafa fjárveitingar til heilbrigðismála
staðið í stað eða dregist saman víða í hinum vest-
ræna heimi. Athyglisvert er að þessi þróun hefur
átt sér stað í öllum vestrænum ríkjum þrátt fyrir
að útgjöld til heilbrigðismála séu mjög mismun-
andi eftir löndum.
Umræða um forgangsröðun á sér stað á samfé-
lagstigi (macro/mesoallocation), þegar fjallað er
um fjárveitingar til heilbrigðismála eða einstakra
málaflokka, og á einstaklingstigi (microalloca-
tion), þegar fjallað er um forgangsröðun einstak-
linga í heilbrigðiskerfinu (klínískt stig).
Læknar hafa skyldur bæði gagnvart einstökum
sjúklingum og samfélaginu í heild. Frumskylda
lækna er við sjúklinga en skyldur lækna gagnvart
einstaklingum, almenningi og hinu opinbera geta
valdið togstreitu (1). Á aðalfundi Læknafélags
íslands árið 1995 var samþykkt að stjórn félagsins
skipaði nefnd til að fjalla um forgangsröðun í
heilbrigðiskerfinu. Nefndin var skipuð í desem-
ber1995.
Eftirtaldir læknar voru skipaðir í nefndina:
Guðmundur Björnsson formaður, Einar Odds-
son, María Sigurjónsdóttir, Pálmi V. Jónsson,
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, Sveinn Magnússon
og Torfi Magnússon.
Hlutverk nefndarinnar eins og því er lýst í skip-
unarbréfi er, „að koma með ábendingar (eða til-
lögur) um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu. í
fyrsta Iagi með tilliti til fjárveitinga til heilbrigðis-
mála. íöðru lagi með tilliti til skipulags í uppbygg-
ingu heilbrigðisþjónustu jafnt í heilsugœslunni
sem og á stofnunum um landið allt og þar með
fjármagnsdreifingu til einstakra þátta heilbrigðis-
kerfisins i landinu öllu. í þriðja lagi forgangsröð-
un með tilliti til beinnarþjónustu við sjúklinga með
tilliti til meðferðar sjúkdóma".
Nefndin hóf störf í byrjun árs 1996. Nefndin
hefur haldið á fjórða tug funda auk samstarfs við
ráðgjafa, í minni og stærri hópum.
Nefndin vill þakka þeim einstaklingum sem
leitað hefur verið til og komið hafa með þarfar
ábendingar.