Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1997, Blaðsíða 27

Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1997, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83/FYLGIRIT 35 27 IX. Lokaorð Forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu snertir alla samstaða um hlutverk og ábyrgð þeirra sem stýra landsmenn. Allir geta tekið þátt í umræðu um forgangsröðun. forgangsröðun en ákvarðanir eru á hendi stjórn- Umræðu um forgangsröðun lýkur aldrei þar málamanna og heilbrigðisstarfsfólks. Miklu sem forsendur breytast vegna nýrrar þekkingar, skiptir að samvinna þessarra aðila sé góð og trún- nýrra meðferðarmöguleika og tækninýjunga. aður ríki milli þeirra. Pess vegna þarf að vera Nefndin leggur áherslu á eftirtalin atriði: 1. Siðferðilegar forsendur verði hafðar að leiðarljósi við forgangsröðun í heilbrigðis- þjónustu. 2. Stjórnvöld setji fram markvissa heilbrigðisáætlun með mælanlegum markmiðum. 3. Gerð verði áætlun um mannaflaþörf heilbrigðisþjónustunnar á næstu árum. 4. Gera þarf áætlanir um húsnæðisþörf í heilbrigðisþjónustu, endurnýjun og notkun þess húsnæðis sem þegar er til staðar 5. Stjórnvöld geri áætlun um fjárveitingar til heilbrigðisþjónustunnar til þriggja ára í senn. 6. Heilbrigðisyfirvöld hlutist til um að fram fari fræðsla um eðli forgangsröðunar og könnun á skoðunum almennings á aðferðum við forgangsröðun. 7. Settur verði á stofn vinnuhópur skipaður fulltrúum heilbrigðisstétta og stjórnvalda sem móti stefnu að því er varðar forgangsröðun. 8. Hvert stig heilbrigðiskerfisins og tilfærsla sjúklinga innan þess verði skilgreint með tilliti til hlutverks og skilvirkni. 9. Lokið verði uppbyggingu frumheilsugæslu fyrir alla landsmenn. 10. Læknafélag íslands hafi forgöngu um að læknar sameinist um mat á lækningatækni, gerð klínískra leiðbeininga og samræmdra biðlista. 11. Athuga þarf kosti fjarlækninga og reglubundinna ferða sérfræðilækna til fámennra staða. 12. Skilgreina þarf ábyrgðarsvið heilbrigðisstétta. 13. Skipuleggja þarf og auka þjónustu við ferlisjúklinga. 14. Kanna þarf hagkvæmni hinna ýmsu möguleika á sjúkraflutningum og hvort frekari uppbygging sjúkraflugþjónustu með þyrlum og flugvélum með vaktviðbúnaði allan sólarhringinn sé hagkvæm. 15. Kanna þarf rekstarhagkvæmni sjúkrahótels í Reykjavík. 16. Áherslu ber að leggja á góða samvinnu milli sjúkrahúsa svo nýta megi á sem hag- kvæmastan hátt tæki, vaktaviðbúnað og aðra þjónustu. Hið sama gildir um aðrar heilbrigðisstofnanir.

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.