Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1997, Blaðsíða 18

Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1997, Blaðsíða 18
18 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83/FYLGIRIT 35 Heilbrigðismál eru í eðli sínu stjórnmál og um- ræða sem varðar heilbrigði þegnanna getur orðið pólitískari þegar nær dregur kosningum (21). Kjördæmaskipun á íslandi gerir það að verkum að áhrif dreifbýlis vega þyngra en þéttbýlis. Hags- munahópar geta komið áhugamálum sínum fram með aðstoð stjórnmálamanna og ekki er þá víst að hagkvæmnissjónarmið ráði ferðinni. Líklegt er að íbúar í einangruðum byggðakjörnum leggist gegn þeirri þróun að samdráttur verði í hefðbundinni sjúkrahúsþjónustu á landsbyggðinni og leggi áherslu á að viðhalda staðbundinni sjúkrahús- þjónustu vegna meintra öryggissjónarmiða. í Reykjavík og á Akureyri er samþjöppun sér- fræðiþekkingar og sérstakar bráðamóttökudeild- ir eru á þessum stöðum. Þjónusta vegna slysa og bráðra sjúkdóma, bæði greining og meðferð, er oft flókin og unnin í teymisvinnu með stuðningi stoðdeilda. Víða utan höfuðborgarsvæðisins er erfiðleikum bundið að veita þjónustu sem upp- fyllir kröfur nútíma læknisfræði að því er varðar skjót og sérhæfð viðbrögð. Gera þarf því ráð fyrir að hægt verði að flytja sjúklinga til höfuðborgar- svæðisins með skjótum hætti þegar það á við en jafnframt að sérfræðiþekking á þéttbýlissvæðum nýtist öllum landsmönnum í bráðatilvikum. I framtíðinni mun sjúkrahúsþjónusta verða sér- hæfðari en áður og teymisvinna og þverfaglegt samstarf verða algengara. Oraunhæft er að ætla að hægt verði að halda uppi nægjanlegri þjálfun í aðgerðartækni til að stundaðar verði skurðað- gerðir í einhverjum mæli á minni sjúkrahúsum. Frumheilsugæsla er veitt á heilsugæslustöðv- um, einkareknum heimilislæknastofum og í nokkrum mæli af sérfræðilæknum í öðrum sér- greinum. Þekking sérmenntaðra heimilislækna tryggir að þeir geta sinnt stórum hluta þeirra læknisfræðilegu vandamála sem upp koma og gera það að öllu jöfnu utan höfuðborgarsvæðis- ins. Faglega getur þessi þjónusta verið í höndum heimilislækna í ríkari mæli en nú er. Þátttaka sérfræðilækna í heilsugæslu á höfuðborgarsvæð- inu á sér hefð og byggir meðal annars á ónóguni fjölda sérmenntaðra heimilislækna. Mikill fjöldi sérfræðilækna á höfuðborgarsvæðinu er nauðsyn- legur til að sinna fullnægjandi vaktþjónustu og sérhæfðum verkefnum á stóru sjúkrahúsunum. Gera má ráð fyrir að í vissurn tilvikum fái sjúkling- ar markvissari þjónustu við sérhæfðum vanda- málum með því að leita beint til sérfræðilækna, en á hinn bóginn getur samhengi í meðferð rofnað, einkuni hjá sjúklingum með fjölþætt vandamál sem leita til margra sérfræðilækna. Æskilegt er að heimilislæknir hafi heildaryfirsýn yfir vandamál sjúklingsins og fjölskyldu hans. Það markmið að sérhver einstaklingur hafi aðgang að heimilis- lækni hefur ekki náðst enn sem komið er.

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.