Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1997, Blaðsíða 24

Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1997, Blaðsíða 24
24 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83/FYLGIRIT 35 Sýna skal þeim hópum samstöðu sem eru í viðkvæmri stöðu vegna æsku, sjúkdóms eða fötlunar og geta ekki sjálfir leitað réttar síns eða varið hann. Virða skal ákvarðanir um heilbrigðis- þjónustu og takmörk hennar en til þess að það geti orðið þarf vilja og samstöðu þjóðar- innar. 3. Skilvirkni heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðis- þjónustan skal vera markviss, árangursrík og eins hagkvæm og nokkur kostur er. Áhersluatriði heilbrigðisþjónustunnar eru eftirfarandi: * Meiri þörf fyrir heilbrigðisþjónustu geng- ur fyrir minni þörf. * Við veikindi og slys skipta þarfir sem tengjast lífsgæðum jafn miklu máli og þarfir sem tengjast heilsu. * Ef flokkur sjúkdóma eða slysa fær for- gang þá gildir sá forgangur um alla þætti heilbrigðisþjónustunnar. * Koma þarf sérstaklega til móts við þarfir fólks með minnkað sjálfræði og það fólk á að njóta sérstakrar verndar. * Nota á öll tækifæri til að hvetja og kenna fólki að bera ábyrgð á eigin heilsu. * Þjónusta sem veitt er á kostnað samfé- lagsins skal byggjast á bestu þekkingu. * Heilbrigðisþjónusta sem bundin er í lög- um þarf að hafa öruggan fjárhagsgrund- völl. Nánari útfærsla þessara siðalögmála birtist í eftirfarandi leiðbeiningum um forgangsröðun innan heilbrigðisþjónustunnar: IA. Meðferð lífshættulegra bráðasjúk- dónia og slysa. Meðferð sjúkdóma og slysa sem munu leiða til dauða fyrir aldur fram eða varanlegra fatlana ef þeir eru ekki meðhöndlaðir. IB. Meðferð alvarlegra langvinnra sjúk- dóma. Líknarmeðferð. Meðferð fólks með minnkað sjálfræði. 2. Forvarnir, endurhæfing og hæfing með staðfestum árangri. 3. Meðferð minna alvarlegra bráðra og langvinnra sjúkdóma þar sem meðferð skilar árangri. 4. Þjónusta vegna annars en sjúkdóma og slysa, til dæmis tæknifrjóvgun og með- ferð til að stækka fólk sem er eða verð- ur líklega lágvaxið. 5. Meðferð sem ekki er byggð á bestu þekkingu skal ekki njóta forgangs. Fyrsti hópurinn er tvískiptur. Ástæðan er sú að við bráða lífshættulega sjúkdóma þarf að fást án tafar. Mælt er með því að meðferð við sárum verkjum, öndunarerfiðleikum, þorsta og öðrum alvarlegum þjáningum sjúklinga með langvinna sjúkdóma fái svipaðan forgang og bráðatilvik. 5. Þjónusta byggð á þekkingu A. Mat á lækningatækni og gerð klínískra leið- beininga. Leggja ber áherslu á læknisfræði sem byggist á niðurstöðum vísindalegra rannsókna og á vinnslu klínískra leiðbeininga. Notkun klínískra leiðbeininga við að ákveða meðferð einstakra sjúklinga getur minnkað breytileika, bætt með- ferð og stuðlað að betri nýtingu fjármagns. Skipu- leggja þarf vinnu við mat á lækningatækni og gerð klínískra leiðbeininga. Einnig þarf að vera til staðar fjármagn til að kosta þá vinnu. Lagt er til að Læknafélag Islands hafi forgöngu um að læknar sameinist um inat á lækningatækni og gerð klínískra leiðbeininga. Eftirfarandi atriði verði höfð til hliðsjónar: a. Klínískar leiðbeiningar skulu stuðla að lausn vandamála í daglegum störfum, eink- um þar sem fengist er við algenga sjúkdóma eða dýr meðferðarform. b. Leiðbeiningar skulu grundvallast á bestu þekkingu. c. Að gerð leiðbeininga skulu koma fulltrúar þeirra aðila sem annast sjúklinginn og gerð þeirra skal vera undir stjórn þeirra lækna, sem bera ábyrgð á meðhöndlun sjúklinga með þau vandamál sem til úrlausnar eru. d. Við gerð leiðbeininganna skal ætíð leitað virkustu/hagkvæmustu lausna. e. Mikilvægt er að kynna klínískar leiðbeining- ar vel meðal lækna. Lagt er til að: 1. Læknafélag íslands stofni sérstakt fagráð sem vera skal læknum og samtökum lækna sem vinna að gerð klínískra leiðbeininga til ráðgjafar um hvernig að vinnunni skuli stað- ið. Ráðið verði einnig formlegur samstarfs- aðili þeirra samtaka sem vinna að mati á lækningatækni og gerð klínískra leiðbein- inga erlendis. 2. Sérgreinafélög sem viðkomandi leiðbein- ingar snerta þurfi að samþykkja slíkar leið- beiningar áður en þær verði staðfestar. Slík- ar leiðbeiningar skulu notaðar til viðmiðun- ar en binda ekki hendur einstakra lækna. 3. Settur verði á stofn sérstakur sjóður á veg- um Læknafélags íslands sem í renni fjár- munir frá opinberum aðilum og þeim einka-

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.