Kjarninn - 03.10.2013, Side 5
V
itur maður hefur sagt að næst því að missa
móður sína sé fátt hollara úngum börnum
en að missa föður sinn.“ Vegir textans eru
órannsakan legir ef bókstafstrú orðanna ræður
för. Þá getur texti beinlínis verið hættu legur og
haft þveröfug áhrif miðað við það sem að er stefnt. Byrjunin
á Brekkukotsannál eftir Halldór Laxness, sem hér er vitnað
til, er dæmi um setningu sem getur vel talist siðlaus og
forkastan leg ef skilningur á henni takmarkast við aðferð
bókstafstrúarinnar.
Því betur er okkur kennt að rýna texta, skilja hann og
rannsaka, í gegnum öll stig skólakerfisins. Þannig verður
lesskilningurinn að helsta vopni okkar í daglegu amstri,
hjálpar til við að greina kjarna málsins, skilja lífsins gang.
Biblían er meðal þeirra rita sem gera miklar kröfur um
textarýni. Framsetning textans og ýmissa dæmisagna gerir
beinlínis kröfu um að bókstafstrúnni sé ekki beitt, heldur
þvert á móti sé boðskapurinn meðtekinn á gagnrýninn hátt.
Túlkun á texta Biblíunnar er eilífðarþrætuepli, eða ætti í
það minnsta að vera það. Erindið á að vera óskýrt og krefjast
yfirlegu. Alveg eins og hjá Laxness.
Meðal annars af þessari ástæðu er ástæðulaust að taka því
mótþróalaust þegar fólk boðar það að Guð sjálfur lækni fólk
af sjúkdómum. Prédikarinn Franklin Graham, sem fjallað
var ítarlega um í Kjarnanum í síðustu viku, er í hópi þess
fólks sem gengur allt of langt í að heimfæra einfalda túlkun á
Biblíutextanum yfir á hin ýmsu vandamál mannlífsins. Í við-
tali við Kastljós RÚV kom þetta ítrekað fram, þar sem hann
beinlínis hélt því fram að Guð læknaði fólk af sjúkdómum,
eins og fíknisjúkdómum og geðrænum kvillum. Það sama á
við þegar Graham hafnar samkynhneigð og samkynhneigðu
fólki á grundvelli bókstafstrúar sinnar á völdum texta brotum
úr Biblíunni. Á sama hátt má með völdum textabrotum vel
rökstyðja hið gagnstæða, að Guð taki samkynhneigðum
opnum örmum. Það sem ætti að vera óumdeilt er síðan það
að efnisleg vísindi hafa fyrir löngu komið fram með trú-
verðugri skýringar á geðveiki en prédikarinn. Og það sem
meira er; samfélagið viðurkennir skýringarnar í gegnum
samfélagslega uppbyggingu, til dæmis í gegnum skólakerfið
allt, löggjafann og praktík heilbrigðisþjónustunnar. Allt tal
um að Guð lækni geðveiki og fíknisjúkdóma er rakalaust og
elur á ranghugmyndum um Biblíutextann og erindi hans,
út frá grundvallarniðurstöðum vísindanna sem við lifum og
þróum líf okkar áfram eftir.
Graham er í hópi þúsunda prédikara í Bandaríkjunum
sem kjósa að boða bókstafstrú á Biblíutexta. Bara það eitt
að bein textabrot í Biblíuna séu kennd sem leiðarljós í
daglegu lífi ætti að kveikja rauð ljós í Biskupsstofu. Slíkri
einfeldni ætti Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, að
sjálfsögðu ekki að taka þátt í. Þess vegna var ánægjulegt að
sjá það á erindi hennar á Hátíð vonar um síðastliðna helgi
að hún gerði það ekki. Hún hafnaði þröngsýnni bókstafstrú
Grahams í ræðu.
Töluverð eftirspurn er eftir bókstafstrúarfólki eins og
Graham, bæði hér á landi og erlendis. Það er miður, vegna
þess að þetta fólk elur á ranghugmyndum um lífið og til-
veruna og boðar einfeldningslegar lausnir á flóknum vanda-
málum, einkum þegar fólk glímir við ýmsa andlega kvilla og
sjúkdóma. Fólk sem hefur menntað sig í þessum vísindum
og rannsakað vandamálin blandar Guði aldrei inn í slíkar
meðferðir, enda kemur hann hvergi nærri.
Langt er síðan vísindin færðu okkur mannfólkinu miklu
trúverðugri skýringar á mannlífinu en hugmyndir trúar-
bragðanna. Það er ekki þar með sagt að ýmis viðmið og gildi
sem lesa má út úr trúarlegum texta, til dæmis í Biblíunni, séu
ekki nytsamleg. Þau eru það, alveg eins og margar kenningar
heimspekinga, sem settu fram hugmyndir sínar með ögrandi
hætti í texta á árum áður. Fólk sem boðar mikilvægi Guðs
verður að bera virðingu fyrir því að þegar á reynir byggir
boðskapur þess ekki á efnislegum staðreyndum heldur
háfleygum og djúpum texta. Það er gott og blessað en um
leið eru mörg víti í honum sem þarf að varast, einkum og
sér í lagi þegar dregnar eru ályktanir af bókstaflegri fram-
setningu orðanna.
Því miður er
eftirspurn
Leiðari
Magnús Halldórsson
magnush@kjarninn.is
01/01 kjarninn Leiðari
M
yn
d:
B
is
ku
ps
st
of
a