Kjarninn - 03.10.2013, Page 11
06/10 kjarninn Fimm ár Frá hruni
í röddinni og á mig leituðu hugsanir um að
kannski þyrftum við að fara niður á höfn
að stunda vöruskipti við erlend kaupskip.
Það fór dálítið um mig við tilhugsunina.
Eins og við værum að fara að lifa aftur upp
á gamla mátann.
Viku síðar féll Glitnir og tveim vikum
síðar voru sett neyðarlög, þegar Geir bað
Guð að blessa Ísland.
Slóst í hópinn
Þá var ég kominn nokkuð yfir þennan ótta.
Útflutningsráð auglýsti svo eftir frum-
kvöðlum í verkefnið ÚH, Útflutnings aukning
og Hagvöxtur. Ég slóst í hóp með þeim og
nokkrum frumkvöðlum og lét framleiða og
selja speglana erlendis, meðal annars á Spáni
og í Svíþjóð. Í prógramminu var bannað
að segja k-orðið (kreppa) og menn héldu
ótrauðir áfram þrátt fyrir allt neikvæðnis-
hjal. Framleiðslan gekk vel, nokkur eintök
komu þó með pínulitlum rispum í og flutti
ég þau heim til að selja unnendum góðrar
hönnunar á hagstæðu verði.
Ánægjulegir uppgangstímar
Um vorið fór ég svo að starfa hjá Icelandair
og hef fylgst með uppgangi þessa merkilega
félags á síðustu árum. Þar upplifði ég ösku-
krísuna, gosið í Eyjafjallajökli, sem mér þótti
ögn skelfilegra en bankahrunið, en gosið
reyndist á endanum mikil blessun og var
aðdáunarvert að sjá hvað allir stóðu saman
við að láta hlutina ganga upp.
Þetta ár varð ég þrítugur og setti fókus-
inn á að lifa lífinu meira úti á landi og finna
mér alls kyns ný verkefni, að gerast nokkurs
konar Yes Man eins og í bíómyndinni með
Jim Carrey. Frábær mynd og heimspeki
sem ég mæli með að allir horfi á og tileinki
sér. Meðal þess sem ég gerði var að fara í
gegnum strangt tveggja vetra prógramm
Flugbjörgunarsveitarinnar. Eitt af minnis-
stæðari atvikunum þar var þegar ég hafði
selt konu spegil á Spáni. Þetta var ein af
fyrstu erlendu sölunum og gekk ég frá
henni í tölvupósti í Nokia-síma, í tjaldi í
Tind fjöllum, rennblautur eftir heilan dag
í rötunaræfingum með áttavita og kort. Ég
man að mér leið gríðarlega vel, enda að upp-
skera eftir mikið hark frá hrunvetrinum
mikla.
Geir á að vera stoltur af ummælum
sínum
Mér finnst Geir ekki hafa átt að vera feim-
inn heldur stoltur af ummælum sínum. Það
hefur enginn náð að afsanna tilvist Guðs og
tel ég víst að trúin á Jesú hafi verið þjóð-
inni til blessunar gegnum árin og verði
það áfram. Það eru alltaf opnar dyrnar hjá
Guði almáttugum, maður þarf bara að bjóða
honum inn, eins og góðum vini, hann ryðst
ekki inn á neinn.
)LPP£UIU£KUXQLÚ6LJXU²XU$QWRQODIVVRQ