Kjarninn - 03.10.2013, Blaðsíða 20
04/04 kjarninn Bandaríkin
mótin. Með lögunum
verður 40 milljónum
Bandaríkjamanna,
sem í dag eru ekki með
heilbrigðis tryggingu,
gert að kaupa sér
tryggingu. Þegar hefur
tryggingamarkaði á
netinu verið komið upp
þar sem markmiðið er
að bjóða ódýrar heil-
brigðistryggingar fyrir
alla Bandaríkjamenn.
Obama segir að með þetta verði ekki bakkað. Lögin muni taka
gildi, jafnvel þótt Repúblikanar séu tilbúnir að „slökkva á
ríkisvaldinu“ eins og Obama komst að orði. Hann sagðist ekki
ætla að láta kúga sig og stjórn hans myndi ekki hvika frá því
að sjúkratryggingarnar yrðu að lögum um áramót.
Lausnargjald
„Repúblikanar eru í reynd að fara fram á lausnargjald,“ sagði
Obama þungur á brún síðdegis á þriðjudegi, þegar ljóst var
að deilan var komin í algjöran hnút í þinginu. Í kjölfarið
sló hann af ferð sína til Malasíu, en þangað ætlaði hann í
opinbera heimsókn og átti hann að vera aðalræðumaður á
nýsköpunarráðstefnu í Kúala Lúmpúr hinn 11. október. Að
mati fréttaskýrenda Wall Street Journal benda þessi orð
Obama til þess að hann hafi verulegar áhyggjur af áhrifunum
af því að stöðva rekstur hins opinbera, fyrst hann frestar
heimsókn sem metin var sem mikilvæg og er ekki á dagskrá
fyrr en eftir níu daga.
Fyrst og fremst er þessi djúpstæða deila þó álitin vera
hneyksli fyrir bandaríska þingið fremur en stjórn Obama,
samkvæmt fréttaskýrendum í bandarískum fagtímaritum.
Það mun ekki ná virðingu sinni aftur fyrr en það hefur leyst
deiluna.
Lok, lok og læs
Víða var lokað hjá hinu
opinbera eftir að lokað var á
fjárveitingar til hins opinbera
í byrjun vikunnar.
Hvað þýðir það að stöðva fjár-
veitingar til ríkisins? BBC skoðaði
málið.
NeyðarfUNdir í
WaSHiNgtoN
Valdamestu bankamenn
heimsins mættu á fundi í
Hvíta húsið í gærkvöldi. Þar
á meðal var Llyod Blankfein,
stjórnarformaður og forstjóri
Goldman Sachs. Hann var
þungur á brún er hann ræddi
við blaðamenn. „Greiðslur
verða að berast til fólks, við
getum ekki látið fjárflæði
stoppast,“ sagði Blankfein.