Kjarninn - 03.10.2013, Side 30
03/05 kjarninn Efnahagsmál
15,5 milljörðum króna í kassann á næsta ári, sem er 14,4
milljörðum króna meira en í ár. Þar af koma 11,3 milljarðar
króna frá bönkum í slitameðferð.
Minnkandi tekjur
Eignarskattar skila áfram sautján milljörðum króna og þar
af verða stimpilgjöld 4,3 milljarðar króna. Langstærsti hluti
þess tekjustofns er auðlegðarskattur, sem nam 9,1 milljarði
króna. Hann verður hins vegar afnuminn á næsta ári. Þar er
því tekjustofn sem mun hverfa ef fram sem horfir.
Veiðigjaldið fyrir veiðiheimildir á að skila 9,8 milljörðum
króna í ríkiskassann á næsta ári. Í fjárlögum ársins 2013 var
gert ráð fyrir að það myndi skila 13,5 milljörðum króna.
Þá verður launaskattur á fjármálafyrirtæki lækkaður.
Hann átti að skila 5,9 milljörðum króna í samneysluna í ár
en fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að hann skili einungis
2,3 milljörðum króna á næsta ári. Arðgreiðslur frá fjármála-
stofnunum sem ríkið á hlut í eru áætlaðar minni á næsta ári
en þær voru í ár. Á fjárlögum 2013 voru þær áætlar 12,2 millj-
arðar króna en eiga að verða 8,1 milljarður króna á næsta ári.
Arðgreiðslur frá öðrum opinberum stofnunum, sem eru aðal-
lega frá Landsvirkjun, dragast líka saman um 900 milljónir
króna og eiga að verða 3,3 milljarðar króna.
Styrkir Íslands frá Evrópusambandinu vegna aðildar-
umsóknar að því, sem nú hefur verið sett á ís, lækka tölu-
vert en verða enn til staðar á næsta ári. Í stað þess að fá 806
milljónir eins og í ár fær ríkið 216 milljónir króna frá Brussel
árið 2014.
Þá vekur athygli að framlög til alþjóðastofnana aukast
um rúmlega 500 milljónir króna. Þar munar langmestu um
að framlög Íslands til þróunarsjóðs EFTA verða tæplega 1,4
milljarðar króna árið 2014, og hækka um 728 milljónir króna
á milli ára. Þróunarsjóður EFTA er oft nefndur verðmiðinn
inn á innri markað Evrópusambandsins. Frá því að Ísland
og Noregur skrifuðu undir EES-samninginn hafa þau greitt
í þennan sjóð, en Noregur greiðir þorra þeirrar upphæðar.
Sjóðurinn úthlutar svo fjármagni til þeirra fimmtán
fjárlagafrumvarp 2014
og fjárlög 2011-2013 hjá
Datamarket