Kjarninn - 03.10.2013, Page 32

Kjarninn - 03.10.2013, Page 32
05/05 kjarninn Efnahagsmál fjárfestingaáætlun fyrri ríkisstjórnar. Þessar aðgerðir munu skila 5,8 milljörðum króna. Þá verður skorið niður í framlögum til Háskóla Íslands (730 milljónir króna), til tækjakaupa fyrir Landspítalann (600 milljónir króna) og til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands (404 milljónir króna). Ýmsum embættum sem hafa vaxið mikið eftir hrun er gert að draga skarpt saman seglin. Þar ber að nefna Sér- stakan saksóknara (290 milljóna króna niðurskurður), Fjármálaeftirlitið (236 milljónir króna) og Umboðsmann skuldara (lækka um 600 milljónir króna). Þá verður embætti Talsmanns neytenda, sem Gísli Tryggvason hefur gegnt um árabil, sameinað Neytendastofu. Framlög til niðurgreiðslu húshitunar á landsbyggðinni munu auk þess lækka um 74 milljónir króna á milli ára. Aukinn kostnaður Það er ekki bara niðurskurður á nýju fjárlögunum. Ýmsir fá meira en þeir fengu áður. Niðurgreiðslur til mjólkur-, sauð- fjár- og grænmetisframleiðslu verða til að mynda 11,8 millj- arðar króna á næsta ári og hækka um tæpar 500 milljónir króna á milli ára. Framlög til Bændasamtakanna hækka líka um 6,1 milljón króna og verða 491,1 milljón króna árið 2014. Þjóðkirkjan kemur líka út í plús. Bein framlög til reksturs hennar, í kirkjumálasjóð, kirkjugarða, jöfnunarsjóð sókna og innheimt sóknargjöld, fara úr því að vera 4,9 milljarðar króna í 5,1 milljarð króna. Þá fær Hagstofan 233 milljónum krónum meira en í ár, sem er aukning upp á 36 prósent milli ára. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fær aukna fjárveitingu upp á 163 milljónir króna, sendiráð Íslands á erlendri grundu fá rúma þrjá milljarða króna, sem er aukning upp á um 200 milljónir króna, og Íbúðalánasjóður heldur áfram að kosta ís- lenska ríkið stórfé; á næsta ári mun hann þurfa 4,9 milljarða króna vegna afleitrar fjárhagsstöðu sinnar. m yn di r: an to n Br in k

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.