Kjarninn - 03.10.2013, Síða 46

Kjarninn - 03.10.2013, Síða 46
03/11 kjarninn Viðmælandi Vikunnar Auk friðar hefur einnig ríkt mikil þverpólitísk samstaða um ýmis mál innan borgarstjórnar Reykjavíkur. Það vakti til að mynda mikla athygli þegar nýtt aðalskipulag var sam- þykkt af fulltrúum allra flokka og með þrettán af fimm tán greiddum atkvæðum. Einungis Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvarsson, tveir af fimm borgarfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins, sátu hjá. Jón segir að samstarfið við minnihlutann hafi að mestu gengið vonum framar. „Samvinna og samræð- ur í fagráðum borgarinnar hafa gengið alveg gríðarlega vel. Þetta hafa verið, að mestu leyti, mjög ánægjuleg og heilbrigð samskipti, sem er ekki sjálfgefið í stjórnmálum. Það sjá- um við til dæmis á Alþingi. Samskiptin þar virðast hvorki vera ánægjuleg né heilbrigð. Við höfum sýnt fólki í öðrum flokkum, eða allavega reynt að sýna, virðingu. Með því sem við höfum gert og staðið fyrir á kjörtímabilinu höfum við sömuleiðis áunnið okkur traust og virðingu þess. Líkt og við vorum mjög opinská með fyrir kosningar nálgumst við þetta verkefni full af trausti. Við treystum því að fólk innan kerf- isins, embættis menn og stjórnmálamenn, sé þangað komið til að vinna vinnuna sína og við treystum því að allir séu að reyna að gera sitt besta. Við göngum út frá því þangað til eitthvað bendir til annars.“ Vond stjórnsýsla Jón hefur verið bæði harðlega gagnrýndur og honum hælt fyrir að útvista verkefnum til sérfræðinga innan jón gnarr um einelti „Ég sagði einhvern tímann frá því að ég hefði upp lifað ofbeldi og einelti á fundi í Grafarvogi. um daginn sagði ég frá því á Facebook að ég væri þeirrar skoðunar að pabbi minn hefði orðið fyrir ákveðinni tegund af einelti. Í bæði skiptin hef ég verið sakaður um að gengisfella hugtakið einelti. En hvað fær fólk til að skilgreina einelti sem hugtak? Einelti er bara ofbeldi á sama hátt og nauðgun. Það er ekki til neitt nauðgunarhugtak. Ef manneskja telur að sér hafi verið nauðgað þá er ekki talað um að hún sé að gengisfella nauðgunarhugtakið. Þetta er bara kjaftæði. Ef ég upplifi einelti þá ber að skoða það, en ekki að fara bara að þvaðra um gengisfellingar. Þetta er ákveðin leið til þöggunar og málsbóta sem er röng og við megum ekki kaupa svona bull. Ef einhver telur sig hafa orðið fyrir ofbeldi ber okkur að skoða það en ekki að gera lítið úr því. Slíkt leiðir okkur yfirleitt í ógöngur með óþarflega miklum sársauka fyrir mjög marga.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.