Kjarninn - 03.10.2013, Side 50

Kjarninn - 03.10.2013, Side 50
07/11 kjarninn Viðmælandi Vikunnar ings, ekki „playerar“ eins og þeir halda oft að þeir séu. Þeirra hlutverk er stefnumótun og eftirlit.“ hættulegasti stjórnmálamaður á Íslandi Jón telur gagnrýnina sem hann fær fyrir stjórnunarhætti sína að einhverju leyti vera vegna þess að pólitískir and- stæðingar hans viti ekkert hvernig þeir eigi að nálgast hann. Þess vegna hengi þeir sig í þannig hluti. „Í fullri einlægni, og án þess að vera Jón frá Sjálfshóli, þá er ég líklega hættu- legasti maðurinn sem er í stjórnmálum á Íslandi í dag. Ég held að flestir séu sammála um það. Og ég er ekki á Alþingi, heldur borgarstjóri. Vægi borgarstjóraembættisins er orðið miklu meira en það var og það eykst dag frá degi. Áður var þetta skrautfjaðravinna sem menn gegndu áður en þeir gerð- ust ráðherrar. Ég hef oft líkt Sjálfstæðisflokknum við kvikmyndina The Ghost. Hann er eins og Patrick Swayze, sem leikur mann sem veit ekki að hann er dáinn. Þá er ég ekki endilega að tala bara um Sjálfstæðisflokkinn heldur þessa tegund af hugsunar- hætti. Ég líki líka sjálfum mér oft við geimveruna í Predator- myndinni. Enginn veit einhvern veginn hvernig á að díla við hana nema Arnold Schwarzenegger. Það var einn Arnold Schwarzenegger á Íslandi en hann er orðinn of gamall fyrir þetta. Hann vildi óska sér að hann væri Schwarzenegger en hann bara er það ekki.“ Þarna á Jón augljóslega við Davíð Oddsson, ritstjóra Morgunblaðsins. Blaðið hefur haldið uppi harðri gagnrýni, að mati sumra árásum, í ritstjórnarskrifum á Jón allt frá því að hann settist í stól borgarstjóra. Þar er hann aldrei kallaður því nafni sem hann tók sér, Jón Gnarr, heldur alltaf skrif- aður Jón Gunnar Kristinsson. Jón segir þessa gagnrýni og ritun á nafni hans ekki trufla sig neitt. Þvert á móti séu skrif Morgunblaðsins honum til mikillar gleði. „Mér finnst þetta alltaf skemmtilegt. Auðvitað er alltaf eitthvað sem kemur öðru hvoru í fjölmiðlum sem truflar eða stuðar mig. Það hef- ur alltaf verið þannig. En Morgunblaðið er pólitískt málgagn Sjálstæðisflokksins. Mbl.is er það líka þótt menn reyni að

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.