Kjarninn - 03.10.2013, Blaðsíða 51
08/11 kjarninn Viðmælandi Vikunnar
halda því fram að það séu einhver skil þar á milli. Þetta
eru bara mismunandi hliðar á sama peningnum.“
Flugvallarmálið pólitískur tilbúningur
Tæplega 70 þúsund manns skrifuðu nýverið undir
undirskrifta söfnun á síðunni Lending.is sem sett var á lagg-
irnar af stuðningsmönnum þess að Reykjavíkurflugvöllur
verði áfram í Vatnsmýrinni. Skoðanakannanir sem gerðar
hafa verið að undanförnu benda auk þess til þess að yfir-
gnæfandi stuðningur sé við þann ráðahag hjá borgarbúum,
og raunar landsmönnum öllum.
Spurður hvort sitjandi meirihluta sé stætt að því að hunsa
þessa stöðu segir Jón svo alls ekki vera. „Við erum alls ekki
að hunsa. Við berum mikla virðingu fyrir lýðræðislegum rétti
fólks til að tjá sig og koma sínum skoðunum á framfæri. En
þetta er flókið mál og ólíkir hagsmunir.
Flugvallarmálið er, að mörgu leyti, tilbúið í pólitískum til-
gangi og er ekki það stóra hitamál sem látið er. Fram setningin
á kostunum í þessari umræðu fannst mér líka svolítið sér-
kennileg. Þetta var eiginlega sett fram sem tveir kostir: viltu
flugvöll með öllu í Vatnsmýrinni eða viltu tortíma Reykjavík
og öllu landinu með? En þetta er ekkert svona einfalt.“
Flugvöllurinn þarf að fara
Jón bendir á að flugvöllurinn sé hluti af aðalskipulagi Reykja-
víkur. Auk þess hafi verið kosið um framtíð hans fyrir tólf
jón gnarr um SeltjarnarneS
„Seltjarnes er fyrir reykjavík eins og þú eigir íbúð
og ríki frændi þinn eigi íbúð við hliðina á þér þar
sem er innangengt í þína. Hann hefur engar skyldur
gagnvart þinni íbúð en getur gengið inn í hana á
skítugum skónum og étið úr ísskápnum þegar hann
vill vegna þess að hann keypti íbúðina með þessum
réttindum. að sama skapi keyptir þú þína íbúð með
þessum vankanti. Þetta setur þig og frænda þinn í
sérkennilega stöðu.
Það er ekkert útigangsfólk á Seltjarnarnesi. Þar
er mjög lítill félagslegur vandi, lág glæpatíðni og
mikil nálægð við náttúru. Þetta eru lífsgæði sem
allir eiga að fá að njóta, ekki bara þeir sem hafa
efni á að kaupa sér þau. Það er líka ekkert leikhús á
Seltjarnarnesi. Það er engin Sinfóníuhljómsveit Sel-
tjarnarness. Það er hins vegar til staðar í reykjavík
og er, ásamt alls konar annarri þjónustu, niðurgreitt
af borginni. Það er því mjög ósanngjarnt að ríkt fólk
nýti sér þjónustuna án þess að borga fyrir hana.“