Kjarninn - 03.10.2013, Qupperneq 56

Kjarninn - 03.10.2013, Qupperneq 56
Á undanförnum árum hafa miklar breytingar orðið í samgöngumálum á höfuðborgar- svæðinu. Sífellt bætist í hóp þeirra sem nota reiðhjól og ný samgöngutæki af ýmsum gerðum hafa bæst í hópinn. Þessi nýju tæki og þá einkum vél- eða rafknúin hjól hafa vakið spurningar um hvaða reglur gildi um notkun þeirra, þ.e. hvar má nota þau, hverjir mega það og hvaða skilyrði þarf að uppfylla. Í þessum pistli verður þeim spurningum svarað. Hverjar eru reglurnar? Samkvæmt umferðarlögum flokkast lítil vél- eða rafknúin ökutæki, sem hönnuð eru til aksturs frá 8 km og upp í 25 km á klukkustund, sem reiðhjól. Allar sömu reglur og gilda samkvæmt lögum og reglugerðum um reiðhjól eiga því við um þessi farartæki, að því frátöldu að samkvæmt umferðar- lögunum er ekki heimilt að aka þessum tækjum á akbraut, meðan önnur reiðhjól mega vera þar. Þessi tæki, hvort heldur sem þau eru rafdrifin eða bensíndrifin, eru því einungis heimil á gangstéttum og stígum, hjálmaskylda á við um þau fyrir börn að 15 ára aldri og bannað er að reiða farþega nema þá ung börn í sérstaklega hönnuðu sæti, svokölluðum barna- stól. Þessi hjól eru ekki skráningarskyld og ekki er skylda að tryggja þau líkt og á við um um önnur vél- og rafknúin öku- tæki. Engin aldurstakmörk gilda um notkun þessara hjóla en í leiðbeiningum Umferðarstofu er ekki mælt með því að börn yngri en 13 ára noti slík hjól. Hvers vegna eru reglurnar svona? Þessar reglur hafa vakið spurningar hjá mörgum því þessi tæki eru oftar en ekki fyrirferðarmikil og geta þrátt fyrir hraðatakmarkanir farið hratt yfir á gangstéttum og stígum þar sem þau eiga heima, og falla því ekki alltaf vel að umferð gangandi vegfarenda. En af hverju er regluverkið svona? Ástæðan virðist vera sú að upp úr síðustu aldamótum fór að bera á áhuga fólks á að flytja inn til landsins vélknúin hlaupahjól. Miðað við gildandi lög var ekki unnt að flytja slík tæki inn nema sem skráningarskyld ökutæki og þar með var notkun þeirra bundin við akbrautir en bönnuð á gangstéttum og stígum. Til þess að bregðast við þessu var lögunum breytt árið 2004 og ákveðið að slík tæki, sem næðu allt að 15 km/ klst. hraða, skyldu flokkuð sem reiðhjól og að notkun þeirra væri bundin við gangstéttir og stíga. Árið 2007 taldi Alþingi ástæðu til þess að útvíkka þessa skilgreiningu með því að hækka hámarkshraða þessara tækja upp í 25 km/klst. án þess að það væri rökstutt nánar. Vandi við eftirlit Undir þessa skilgreiningu laganna á reiðhjólum flokkast ekki einungis vélknúin hlaupahjól, sem raunar ber lítið á um þessar mundir, heldur einnig rafmagns- og vélknúin tvíhjól sem til eru í ýmsum gerðum og útfærslum. Af hálfu framleið- enda og seljenda þessara hjóla er í flestum tilvikum séð til þess að þau komist ekki hraðar en 25 km/klst. til að tryggja þessa flokkun hjólanna en auðvelt virðist vera að fjarlægja þann útbúnað í flestum tilvikum. Af útliti eða gerð hjólanna má heldur ekki ráða með augljósum hætti hvort þau eru búin þessum hraðatakmarkara og því getur eftirlit með þessu verið tafsamt og snúið. Lögin fjalla heldur ekki um reiðhjól sem bæði er knúið áfram með stig- eða sveifarbúnaði, eins og það er kallað í lögunum, og með rafmagnsmótor. Hvort telst það hefðbundið reiðhjól eða rafknúið tæki, sem þar með er óheimilt að nota á akbrautum? Framangreind atriði og fleiri til gera eftirlit og eftirfylgni lögreglu með notkun þessara tækja erfitt svo ekki sé meira sagt. Hvað er til ráða? Ljóst er að löggjöfin á þessu sviði hefur ekki fylgt eftir þeirri þróun sem orðið hefur að undanförnu á sviði raf- og vél- knúinna reiðhjóla. Breytingarnar sem gerðar voru á lögunum árið 2004 voru til þess að mæta ákveðinni tískubólu vegna vélknúinna hlaupahjóla en sú breyting og útvíkkunin 2007 opnaði fyrir notkun enn fleiri og fjölbreyttari tækja sem reiðhjóla, sem eru fyrir vikið ekki skráningarskyld og engar kröfur gerðar lögum samkvæmt um notkun hlífðar búnaðar, ef frá er talin skylda til notkunar hjálma sem gildir þó einungis fyrir börn undir 15 ára aldri. Eðlilegt er að fjallað sé um þessi tæki með skýrum hætti í lögum, að undangengnu mati á því hvar megi nota þessi tæki, hvaða aldurstakmörk eigi að setja og önnur skilyrði, t.a.m. um hlífðarbúnað, tryggingar o.fl. Að mínu mati er rétt að þeirri vinnu verðið hraðað og breytingar gerðar við fyrsta tækifæri á umferðar- lögum, en málið ekki látið bíða eftir heildarendurskoðun laganna sem staðið hefur yfir mörg undanfarin ár. Gölluð lög sem þarfnast endur skoðunar 01/01 kjarninn pistill pistill Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu leiðbeiningar Umferðarstofu um notkun vél- og rafknúinna hjóla smelltu til að sjá mynd- band Umferðarstofu um hjólreiðar smelltu til að sjá myndband Umferðarstofu um létt bifhjól
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93

x

Kjarninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.