Kjarninn - 03.10.2013, Page 60
02/02 kjarninn Dómsmál
sem tvímenningarnir höfðu rétt til að selja Dagsbrún hluta-
bréfin aftur á tilteknu verði og að liðnum ákveðnum tíma.
Dagsbrún var skipt upp í tvö félög í nóvember 2006, annars
vegar Teymi hf. og hins vegar Íslenska afþreyingu hf. Í júní 2009
sendi Svenn Dam félögunum bréf þar sem farið var fram á inn-
lausn hlutabréfanna samkvæmt hluthafasamkomulaginu. Krafa
hans var samþykkt af hálfu Teymis og í samræmi við nauða-
samninga félagsins fékk hann 20 prósent af kröfum sínum í
formi hlutafjár í Teymi.
Bú 365 Media Scandinavia A/S var tekið til gjaldþrotaskipta
í október 2008 og lauk skiptameðferð á búinu í desember 2009
sem eignalausu. Skiptastjóri Íslenskrar afþreyingar ákvað að
líta á erindi stjórnarformannsins sem kröfulýsingu í þrotabú
félagsins og hafnaði kröfunni með bréfi í september 2009.
Gunnar Smári hefði ekki haft umboð stjórnar Dagsbrúnar til að
gera umræddan hluthafasamning.
Ágreiningurinn endaði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur,
sem hafnaði tæplega 65 milljóna króna kröfu fyrrverandi
stjórnar formanns 365 Media Scandinavia í þrotabú Íslenskrar
afþreyingar. Umrætt valréttarákvæði þótti óvenjulegt og mikils-
háttar ákvörðun í skilningi laga um hlutafélög og slíkar ráð-
stafanir gæti framkvæmdastjóri ekki gert nema samkvæmt
sérstakri heimild stjórnar Dagsbrúnar. Óumdeilt var í málinu að
ekki var að finna í fundargerðum stjórnar Dagsbrúnar að Gunnari
Smára hefði verið veitt heimild til að gera umrædda samninga
fyrir hönd félagsins. Umboð hans var því talið ósannað og var
úrskurður héraðsdóms staðfestur í Hæstarétti í febrúar 2011.
Krafa tvímenninganna nú byggist á því að héraðsdómur og
Hæstiréttur hafi staðfest að Gunnar Smári, þáverandi fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar, hafi verið umboðslaus við gerð hlut-
hafasamninganna og er þess krafist að skaðabótaskylda hans
verði viðurkennd vegna þess. Til að geta sótt skaðabætur þurfa
fyrrverandi stjórnendur Nyhedsavisen að sýna fram á tjón, en
tryggingafélaginu Sjóvá er sömuleiðis stefnt vegna stjórnenda-
ábyrgðartryggingar. Tryggingafélagið hafnar kröfunni.
Aðalmeðferð í málinu fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í
janúar.