Kjarninn - 03.10.2013, Blaðsíða 69
N
ýr iPad er á leiðinni frá Apple, iPad 5, og
líklegt er að hann verði kynntur á einum
af frægum kynningar fundum Apple síðar í
mánuðinum, samkvæmt frásögnum frétta-
miðla sem sérhæfa sig í tækni umfjöllun, þar á
meðal TechRadar.
Það sem helst er talið skilja hann frá fyrri útgáfum er að
hann er mun fyrirferðarminni, ríflega 23 prósentum þynnri
og þriðjungi léttari en iPad 4, auk þess sem uppfærð útgáfa
A7-örgjörvans mun keyra vinnslu hans áfram. Þá verður
lýsing í skjánum endurbætt og notkunarupplifunin á að vera
áhrifameiri og betri.
Microsoft vinnur á
Allt frá því í febrúar á þessu ári hefur legið fyrir að nýr iPad
5 væri á leiðinni. Í millitíðinni hefur staðan á spjaldtölvu-
markaði breyst umtalsvert. Surface-tölvurnar frá Microsoft
hafa selst vel og eru þær samanlagt með 7,5 prósenta
markaðs hlutdeild í Bandaríkjunum. Þá hafa spjaldtölvur
frá öllum þeim framleiðendum sem nýta Android-stýrikerfi
í tölvur sínar einnig selst vel að undanförnu. Bandaríska
greiningarfyrirtækið ABI Research greindi frá því í frétta-
tilkynningu 27. september síðastliðinn að spjaldtölvur með
Android-stýrikerfi hefðu selst meira en Apple-tölvur á öðrum
fjórðungi þess árs. Samanlagðar tekjur af spjaldtölvusölu
námu 12,7 milljörðum Bandaríkjadala, eða sem nemur ríflega
1.530 milljörðum króna.
Android líka
Apple gefur ekki upp hvernig salan skiptist á milli einstakra
útgáfa af iPad en samkvæmt greiningum ABI Research dróst
salan á iPad saman um 17 prósent á sama tíma og sala á
tölvum með Android-stýrikerfi jókst um sömu prósentu. Þrátt
fyrir þessar breytingar er staða Apple á spjaldtölvumarkaði
gríðarlega sterk og fátt bendir til þess að heljartak fyrirtækis-
ins á spjaldtölvumarkaði sé að minnka mikið. Hins vegar er
sótt að Apple úr öllum áttum eins og búast má við
Myndband sem blaðamenn
techRadar gerðu um mögulegt
útlit og virkni iPad 5 hefur vakið
athygli
02/03 kjarninn tækni
Tækni
Magnús Halldórsson
magnush@kjarninn.is