Kjarninn - 03.10.2013, Blaðsíða 76
03/05 kjarninn Exit
og annar söngvaranna,
Gunnar Ragnarsson, voru
saman í hljómsveitinni
Jakobínarína. Einnig eru
í hljómsveitinni saxófón-
leikarinn Tumi Árnason
og söngvarinn Baldur
Baldursson. Hljómsveitin
sendi í sumar frá sér fyrstu
breiðskífu sína, ALI, og er
hún ein tryllingslegasta
og skemmtilegasta rokk-
skífa sem komið hefur út í
nokkur ár á Íslandi. Textar
þeirra eru yfirleitt myrkir og sungnir á íslensku í ljóð-
rænum og prósastíl af þeim Baldri og Gunnari. Söngstíll
Baldurs minnir einna helst á súrrealíska Medúsuskáldið
Sjón og Gunnar minnir á köflum á Nick Cave á sínum
villtustu árum. Hljómsveitin er þétt og bræðir saman
áhrifum héðan og þaðan, þar á meðal úr þýsku súrkáls-
rokki, bresku síðpönki, íslenskri nýbylgju níunda ára-
tugarins og frá sjálfum Megasi. Tónleikar Grísalappalísu
eru afar fjörugir og sveittir.
KAJAK
KAJAK steig fram
á sjónarsviðið á
þessu ári og er hér á
ferðinni metnaðar-
fullur rafpoppdúett
sem sækir áhrif sín í
rafpoppsenu Gauta-
borgar í Svíþjóð, sem
getið hefur af sér flytjendur á borð við Jens Lekman, The
Tough Alliance, CEO, Air France og fleiri góða. Fyrsta
smáskífa KAJAK, Gold Crowned Eagle, hefur notið tölu-
verðrar hylli nýverið og er von á breiðskífu
Smelltu til að hlusta
á Grísalappalísu
Smelltu til að
hlusta á KAJAK