Kjarninn - 26.12.2013, Page 15

Kjarninn - 26.12.2013, Page 15
Deildu með umheiminum Álit skörp hægri beygja Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, skrifar. Á rið 2013 hefur um margt verið merkilegt og eftirminnilegt í pólitíkinni. Stærsta kosninga- loforð allra tíma var í brennidepli í kosninga- baráttunni. En eins tel ég að sjaldan eða aldrei hafi jafn skörp skil orðið í áherslum við ríkisstjórna skipti. Skilin milli ríkisstjórnar jafnaðar- og félagshyggju og þeirrar hægri ríkisstjórnar sem tók við nú í vor eru nefnilega alveg ótrúlega skörp og beygjan tekin til hægri strax á sumarþingi og nú á haustdögum í fjárlögum. lægstu tekjuhóparnir skildir eftir Í fjárlagafrumvarpi má glögglega sjá stóru línurnar í stefnu ríkisstjórnarflokka hverju sinni. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er nú í þessum skrifuðu orðum að klára sín fyrstu fjárlög og bera þau skarpri hægri beygju sem tekin hefur verið í okkar samfélagi gott vitni. Ekki er að finna þar eina einustu tillögu sem bæta mun kjör þeirra sem lægstar tekjur hafa í okkar samfélagi. Skattalækkanir fá þeir einir sem eru í efri- og millitekjuþrepi og þá mest eftir því sem tekjurnar verða hærri. Á sama tíma eru skráningargjöld á náms- menn hækkuð, verðlagsbreytingar látnar ganga í gegn og gjöld hækkuð sem hlífa síst lágtekjuhópunum. Komugjöld á sjúkrahús ætluðu menn að innleiða en sem betur fer tókst okkur að stöðva þau áform í samningum um þinglok ásamt því að ná því í gegn að desemberuppbót yrði greidd til atvinnuleitenda. Þá verð ég að nefna að skuldaleiðréttingar sem kynntar hafa verið skila sér að minnstu leyti til þeirra sem lægstar hafa tekjurnar og alls ekki til þeirra sem eru á leigumarkaði þó að þeir hafi fengið forsendubrestinn að fullu inn í leigugreiðslur. Breiðu bökin Þá er hafist handa við það að lækka vaxtabætur í fyrstu fjár- lögum þessarar ríkisstjórnar sem kemur verst niður á þeim sem skulda mest, unga fólkinu sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Ríkisstjórnin hefur haldið því fram að ástæða þessara breytinga sé að fjármagna þurfi heilbrigðiskerfið með þessum fjármunum. Ja, heyr á endemi. Flestir vita nú betur þegar ljóst er að ástæðan er sú að fyrsta verk þessarar ríkisstjórnar á sumarþingi var að afsala sér tekjum vegna einkaleyfa til nýtingar á þjóðarauðlindum. Breiðu bökin til að bera þetta afsal tekna fann ríkisstjórnin í lægstu tekju- hópunum í samfélaginu, námsmönnum og fátækasta fólkinu i heiminum sem við sendum niðurskorna þróunaraðstoð til þessi jólin. Þessi stefna sem felst í ofangreindum breytingum og fleirum mun færa okkur meiri ójöfnuð með tilheyrandi vanda sem honum fylgir. deilt með fjórum Kannski finnst þér, lesandi góður, ég óttalega neikvæð svona í lok árs en mér stendur bara ekki á sama um þessa stefnu- breytingu og er henni alls ekki sammála. Eitt ætla ég þó að vera þakklát fyrir og það er að niðurstaða hafi náðst í stærsta kosningamál allra tíma; loforð Framsóknarflokksins um að lækka verðtryggð húsnæðismál landsmanna. Það mun skipta mörg heimili máli og það mun ekki standa á mér að styðja það. Niðurstaðan er þó kannski ekki í takt við loforðin, ekki nema rétt um fjórðungur þess sem lofað var en þó það. Fjármögnunin er áhyggjuefni, þar sem hrægammaféð sem átti að vera handan við hornið er fjær en Excel-skjal framsóknarmannanna sagði til um í vor, en það verður verkefni þingsins á næstunni að fara yfir það. Tvennt finnst mér standa upp úr varðandi þessa niðurstöðu: Í fyrsta lagi að skýrsla starfshópsins sýnir að mun meira var gert á síðasta kjörtímabili en látið var í veðri vaka og þessar tillögur eingöngu framhald á þeim aðgerðum fremur en heimsmet. Enda byggja þessar tillögur á því sem fyrir hafði verið gert. Í öðru lagi hef ég lært að deila má með fjórum í kosninga loforð Framsóknarflokksins miðað við efndirnar í skuldaleiðréttingunum og auknum framlögum til Landspítalans. þakkir Vil ég í lokin þakka öllum þeim sem við fengum að starfa með að framfaramálum bæði innan ríkisstjórnar og utan nú eftir kosningar. Það er mikill kraftur í íslensku samfélagi og við í Samfylkingunni hlökkum til að taka áfram þátt í að gera það sterkara, réttlátara og betra. Við munum berjast fyrir bættum lífskjörum, betra um- hverfi fyrir fjölbreytt atvinnulíf og jöfnum rétti allra einstaklinga til að lifa frjálsir í samfélagi okkar. Óska ég ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og far- sældar á komandi ári. Lifið heil! „Skatta lækkanir fá þeir einir sem eru í efri- og millitekjuþrepi og þá mest eftir því sem tekjurnar verða hærri.“ um HöFundinn Katrín Júlíusdóttir er varaformaður Samfylkingarinn- ar og fyrr verandi iðnaðar- og fjármála ráðherra 01/01 kjarninn ÁLit „Fjármögnunin er áhyggjuefni, þar sem hrægammaféð sem átti að vera handan við hornið er fjær en Excel- skjal framsóknar- mannanna sagði til um í vor, en það verður verkefni þingsins á næstunni að fara yfir það.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.