Kjarninn - 26.12.2013, Síða 17

Kjarninn - 26.12.2013, Síða 17
Deildu með umheiminum Álit spennandi tímar fram undan Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins, skrifar Á n efa var stærsti viðburðurinn í mínu lífi á árinu fæðing dóttursonar. Annað „afabarnið“ mitt og annar strákurinn. Galdrar lífsins og fegurð endurspeglast fölskvalaust í nýfæddu barni og gagnvart því stendur maður orðlaus af hrifningu og aðdáun. Svo er einnig um mig. En að hefðbundnari verkefnum daglegs lífs; alþingis- maður hefur í mörg horn að líta. Ekki síst þegar árið hefst í stjórnarandstöðu en lýkur í stjórnarmeirihluta og með ráðherrastól í ofanálag. Það er freistandi að skrifa um það sem gerðist eftir kosningar, svo mikið hefur gengið á, en ætli sé ekki réttara að byrja á byrjuninni. Árið fór ágætlega af stað fyrir Framsóknarflokkinn. Stuttu eftir að niðurstaða lá fyrir í svokallaðri Icesave-deilu var ljóst að fleiri en áður voru tilbúnir að hlusta á málflutning okkar. Megináhersla flokksins fyrir kosningarnar í vor var á skuldamálin. Alveg eins og fyrir kosningarnar 2009. Þótt lítillega hefði mjakast var það engan veginn nóg. Ég tel að þessi tvö mál skýri góðan árangur okkar í kosningunum. Sumarþingið var sett og stærsta mál minna ráðuneyta var að breyta lögum um innheimtu veiðigjalda. Gildandi lög gerðu það að verkum að ekki var hægt að innheimta sérstakt veiðigjald og því var nauðsynlegt að breyta lögunum. Á því leikur enginn vafi og einfaldlega rangt að halda öðru fram, þótt margir hafi ekki staðist þá freistingu, sérstaklega þeir sem settu hin gölluðu lög. Auk þess var ljóst að byrðunum var mjög misskipt milli útgerðarflokka og við því varð að bregðast. Markmiðið var að verja smærri og millistórar bolfiskútgerðir víðs vegar um landið. Það má þó geta þess að sú aðgerð að lækka veiðigjald til þeirra hafði ekki áhrif á heildartekjurnar, því við hækkuðum gjöldin á uppsjávar- tegundir, þar sem afkoman er betri. Og hafa verður í huga að sjávarútvegurinn hefur aldrei greitt eins mikið í ríkissjóð og í ár. Málefni sjávarútvegsins á Íslandi verða að komast í viðunandi horf. Allt of lengi hefur verið deilt um þessa mikil- vægustu atvinnugrein okkar. Nú er því unnið að svokallaðri samningaleið í sjávarútvegi, sem gengur út á að gera leigu- samning við útgerðir um nýtingu á sameiginlegri auðlind í hafinu. Fyrir það greiðir útvegurinn leigu- gjald en fær í staðinn fyrirsjáanleika til ákveðins árafjölda, 20-25 ár. Af einstökum verkefnum sem unnin eru á vegum sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðuneytisins tel ég þetta vera hið mikil vægasta. Ekki síst í ljósi þess, og því hef ég kynnst af eigin raun undanfarna mánuði, að sjávar útvegurinn er svo miklu meira en bara veiðar og vinnsla. Sem dæmi má nefna að velta tækni- fyrirtækja í sjávarklasanum nam tæpum 66 milljörðum árið 2012 og við þetta bætist vinnsla á svokölluðum aukaafurðum og í líftækni. Samanlögð velta í þessum geira var 22 milljarðar árið 2012. Þau gleðilegu tíðindi hafa orðið að mikil spurn er eftir íslenskum mat og bændur, bæði í kjötframleiðslu og mjólkur- framleiðslu, hafa verið hvattir til að framleiða meira. Svo- kallað ásetningshlutfall í sauðfjárrækt hefur verið hækkað og þá hefur framleiðsluskylda kúabænda verið hækkuð. Aukin spurn eftir mjólkurmat, sérstaklega feitmeti, hefur slegið öll met á undanförnum mánuðum og virðist lítið lát á. Svo virðist sem neyslumynstur landans hafi breyst og einnig hefur stórfjölgun ferðamanna áhrif á eftirspurnina. Allt eru þetta vísbendingar um að matarframleiðsla á Íslandi eigi í vændum spennandi tíma. Góðan samhljóm mátti greina á meðal þátttakenda á Umhverfis þingi sem haldið var í byrjun nóvember. Fjallað var um skipulag lands og hafs, sjálfbæra þróun og sam- þættingu verndar og nýtingar. Vinna við tillögu að Land- skipulagsstefnu 2015-2026 er hafin og verður meðal annars horft til leiðbeinandi skipulags landnotkunar. Skipulagsmál byggjast á ákvörðunum sem gilda eiga um langa hríð, um ráðstöfun lands, hvort sem er til nýtingar eða verndar og eru í eðli sínu átakamál. Hagsmunir geta verið ólíkir og stangast oft á tíðum á. Einnig er lífssýn fólks ólík. Líflegar og málefna- legar umræður spunnust á þinginu á milli ólíkra hópa sem láta sig málaflokkana varða. Slíkar umræður eru mikilvægt veganesti fyrir áframhaldandi vinnu og stefnumótun í umhverfis málum; þau snerta okkur öll um ókomna tíð. Einföldun og skilvirkni regluverks er eitt af því sem hafin er endurskoðun á með það fyrir augum að endurskoða regluverk atvinnulífsins og auka skilvirkni þess. Markmið er að minnka skrifræði og einfalda samskipti við opinbera aðila um leið og kostnaði er haldið í lágmarki. Þá er það sérstakt markmið að engar nýjar íþyngjandi reglur verði innleiddar fyrir atvinnulífið án þess að um leið falli brott jafn veiga miklar kvaðir. Með þeim hætti er ætlunin að heildaráhrif regluverksins þróist í rétta átt án þess að dregið sé úr eðlilegum kröfum. Framsóknarflokkurinn boðaði aðgerðir í þágu skuldara í aðdraganda kosninga. Við þau fyrirheit verður staðið og starfs- hópur hefur lagt fram tillögur um hvernig það verður gert. Má því segja að stærsta kosninga mál Framsóknar sé að komast til framkvæmda. Farin er svokölluð blönduð leið af skuldaniðurfellingu og skatta afslætti. Þetta er stærsta aðgerð sem ráðist hefur verið í til að rétta af hag þeirra sem urðu fyrir óvæntri hækkun á verðtryggðum húsnæðis lánum vegna hrunsins. Þegar litið er yfir sviðið, eins og sagt er, virðist mér sem spennandi tímar séu víða fram undan í íslensku þjóðlífi. Á það hefur margoft verið bent að fámennið og fjöldi auðlinda eigi að geta séð þjóðinni farborða með sómasamlegum hætti. Ég efast aldrei um að svo sé. En þótt tækifærin séu næg þarf að vinna úr þeim. Fiskur er til dæmis ekki verðmæti fyrr en hann er veiddur og seldur. Að ná tökum á því sem við höfum að bjóða og fá fyrir það sem hæst verð, nýta það öllum til hagsbóta með sjálfbærum hætti, verður viðfangsefni okkar á næstu misserum. Ég óska lesendum Kjarnans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. „Málefni sjávar- útvegsins á Íslandi verða að komast í viðunandi horf. Allt of lengi hefur verið deilt um þessa mikil vægustu atvinnu grein okkar. Nú er því unnið að svokallaðri samningaleið í sjávarútvegi[...]“ „Framsóknar- flokkurinn boðaði aðgerðir í þágu skuldara í að- draganda kosninga. Við þau fyrirheit verður staðið og starfshópur hefur lagt fram tillögur um hvernig það verður gert. Má því segja að stærsta kosningamál Fram- sóknar sé að komast til framkvæmda.“ um HöFundinn Sigurður Ingi Jóhannsson er varaformaður Framsóknar- flokksins og sjávar- útvegs- og land- búnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra. 01/01 kjarninn ÁLit
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.