Kjarninn - 26.12.2013, Side 18
Deildu með
umheiminum
Álit
2013: Ár loddarans
Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna, skrifar.
r
íkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar var
frá fyrsta degi dæmd til óvinsælda. Verkefnin
sem hún fékk í hendurnar voru einfaldlega þess
eðlis. Ástandið í samfélaginu í ársbyrjun 2009 og
fyrstu árin eftir Hrun var heldur ekki jarðvegur
vinsælda. Þá var hins vegar erjaður jarðvegur lýðskrums og
loddaraskapar sem tókst vel hvaðan sem upp spruttu gildir
stofnar sem áttu eftir að skarta öllum sínum fegurstu blöðum
næstu fjögur árin.
Vinstristjórnin vökvaði ekki þær jurtir heldur reyndi
þvert á móti að uppræta þær eins og annað illgresi en án
teljandi árangurs.
Kosningar án uppgjörs
Árið 2013 hefði að öllu eðlilegu átt að vera ár uppgjörs í
íslenskum stjórnmálum. Kosningarnar síðastliðið vor hefðu
átt að snúast um pólitísk stefnumál stjórnmálaflokka og
mótun þjóðfélags til framtíðar. Þjóðfélags sem enn var í
sárum eftir efnahagslegt, pólitískt og siðferðilegt hrun sem
á sér ekki hliðstæðu í vestrænu lýðræðisríki á síðari tímum.
Við hefðum átt að rökræða um ólíka lífssýn okkar allra og
kjósa um stefnu út frá því. En það gerðist
ekki. Þvert á móti tókst stjórnmála mönnum
að koma í veg fyrir eðlilega, heilbrigða og
nauðsynlega rökræðu rétt eins og þeim
tókst það árin þar á undan. Meginmálið
varð að fótnótu og lýðskrumið að aðal-
atriðum. Kosning arnar snerust á endanum
um fullkom lega óraunhæf loforð sem áttu
engan sinn líka í sögu þessarar þjóðar.
Eftir sitjum við öll vígmóð og undrandi á
því hvernig þetta gat farið með þeim hætti
sem varð. Það sem verra er; loforðin hafa öll verið svikin.
Aðal hagfræðingur Danske bank segir íslenska stjórnmála-
menn ekki hafa litið til framtíðar fyrir Hrun og enn síður
eftir Hrun. Þvert á móti lofa þeir nú sem aldrei fyrr að senda
íbúum landsins háar upphæðir úr ríkissjóði til að tryggja
vinsældir sínar og endurkjör. Þrátt fyrir að þessi lýsing eigi
ágætlega við of stóran hluta íslenskra stjórnmálamanna er
hún ósanngjörn gagnvart öðrum sem hafa sinnt störfum
sínum af ábyrgð. Það þarf hvorki kjark né þor til að sýna
ábyrgð og fyrirhyggju. Menn þurfa hins vegar að vera
slóttugir og slægir, kjarkmiklir og ósvífnir til að segja ósatt
og ganga á bak orða sinna.
vanmetin áhrif stjórnmálamanna
Því hefur oft verið haldið fram að hin raunverulegu áhrif sé
að finna utan veggja Alþingis og við séum meira og minna
drifin áfram af sérhagsmunum. Það var margt til í því fram
að Hruni og kann að vera að taki sig upp að nýju. Menn skulu
þó ekki vanmeta áhrif stjórnmálamanna.
Slegið hefur á bjartsýnina sem reis hvað hæst á vordögum.
Stjórnendur fyrirtækja telja flestir að þyngra sé fyrir fæti en
þyrfti að vera og almenningur heldur að sér höndum vegna
óljósra skilaboða frá stjórnvöldum. Yfir vofandi hækkun á
verðbólgu og vöxtum hefur hægt á gangverki efnahags lífsins
og dregið úr væntingum fyrirtækja og almennings til fram-
tíðarinnar. Pólitísk samskipti við útlönd eru í meira uppnámi
en verið hefur um árabil. Þetta eru dæmi um merkjanleg
áhrif stjórnmálamanna.
þrátt fyrir allt
Þrátt fyrir allt var árið 2013 að mörgu leyti gott ár. Við spyrnan
í atvinnulífinu var framan af ári meiri og kröftugri en
reiknað hafði verið með. Einstaka atvinnu-
greinar blómstruðu sem aldrei fyrr, listir- og
menning virtust loks ætla að ná rótfestu og
fá viðurkenningu sem hluti af meginstoðum
atvinnu lífsins. Tekjur jukust, húsnæðis-
skuldir landsmanna lækkuðu, efnahags málin
nálguðust jafnvægi og við fórum að trúa því
fyrir alvöru að við myndum ná okkur aftur
á strik. Árangur karla landsliðsins í fótbolta
nálgaðist saman burð við kvenna landsliðið,
einstaklingar ögruðu sjálfum sér og unnu
sigra. Manchester United varð Englands-
meistari eina ferðina enn. Við fundum aftur
bragðið af bjart sýninni.
Áfram veginn
Þó svo að áhrif Hrunsins muni setja mark sitt á líf og afkomu
næstu tvo til þrjá áratugina eigum við ása á hendi til að spila
út. Tækifærin eru þarna enn eftir sem áður og bíða þess að
verða nýtt. Þau felast í menningu okkar og listum, hugviti
og sköpunarkrafti og endurmati á föllnum gildum. Síðast en
ekki síst felast tækifærin í okkur sjálfum ef við varð-
veitum rökræðuna og heilbrigða, gagnrýna hugsun.
Þá mun okkur farnast vel á nýju ári. Tækifærin
felast í nýju ári um leið og við kveðjum gamla árið.
Ár loddarans.
Ég óska lesendum gleðilegs árs og farsældar á
nýju ári.
„Kosning arnar
snerust á endanum
um fullkomlega
óraunhæf loforð
sem áttu engan
sinn líka í sögu
þessarar þjóðar.“
um HöFundinn
Björn Valur
Gíslason er
varaformaður
Vinstri grænna
og fyrrverandi
þingmaður.
„Tekjur jukust,
húsnæðis skuldir
landsmanna
lækkuðu, efnahags-
málin nálguðust
jafnvægi og við
fórum að trúa því
fyrir alvöru að við
myndum ná okkur
aftur á strik.“
01/01 kjarninn ÁLit