Kjarninn - 26.12.2013, Side 27

Kjarninn - 26.12.2013, Side 27
feb jan maí okt júní sept des apríl ágú nóv júlí mars 04/13 Fréttir Ársins 2013 mars erlentinnlent 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 Hugo Chavez andast 5. mars 2013 Forseti Venesúela, Hugo Chavez, lést eftir tveggja ára baráttu við krabbamein í byrjun mars. Hann hafði verið forseti í fjórtán ár og í október 2012 var hann endurkjörinn þrátt fyrir veikindin. andlát hans kom ekki sérstaklega á óvart, enda hafði hann ekki sést opinberlega frá því í desember 2012, en þá gekkst hann undir fjórðu aðgerðina vegna meinsins. Vara- forseti landsins tilkynnti andlát forsetans að kvöldi 5. mars, en nokkrum dögum áður hafði verið greint frá því að forsetinn berðist við sýkingu í öndunarfærum og að brugðið gæti til beggja vona. Í kjölfar andlátstilkynningarinnar streymdi mikill fjöldi út á götur víðs vegar um landið þar sem stuðningsmenn forsetans komu saman og syrgðu. nýr páfi kjörinn 13. mars 2013 argentínumaðurinn Jorge Bergoglio var kjörinn 266. páfinn hinn 13. mars. Hann varð Frans fyrsti og er fyrsti páfinn í yfir 1.200 ár sem ekki er frá Evrópu. Undir lok árs var hann valinn maður ársins hjá tímaritinu time. Hann þykir hafa slegið nýjan og mildari tón í Vatíkan- inu, meðal annars gagnvart samkynhneigðum. milljón flóttamanna 6. mars 2013 Fjöldi þeirra sem flúið höfðu stríðsátökin í Sýr- landi fór yfir eina milljón í byrjun mars. Þessi tala hefur hækkað mikið síðan þá. Einkum flýr fólk til Líbanons, Jórdaníu, tyrklands, Íraks og Egyptalands. Milljónir manna eru að auki á flótta innan landamæranna. Björgólfur yfir sa 6. mars 2013 Björgólfur Jóhannsson, forstjóri icelandair Group, var kjörinn formaður Samtaka atvinnu- lífsins. Fangelsaður fyrir smygl 8. mars 2013 Davíð Örn Bjarnason, 28 ára Íslendingur, var handtekinn í tyrklandi og sakaður um fornmuna smygl. ólafía fyrsta konan kjörin í formennsku í vr 15. mars 2013 Ólafía B. Rafnsdóttir var fyrst kvenna kjörin formaður VR, stærsta stéttarfélags landsins. Hún gersigraði fráfarandi formann, Stefán Einar Stefánsson, í kosningu á meðal félags- manna. Ákært í umfangsmesta máli sérstaks saksóknara 15. mars 2013 Ákæra á hendur níu fyrrverandi starfsmönn- um Kaupþings var gefin út af Sérstökum saksóknara. Fólkið var ákært fyrir aðild að allsherjarmarkaðsmisnotkun og umboðssvik. Á meðal hinna ákærðu voru Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson. Málið var umfangsmesta mál sem embætti sérstaks saksóknara hafði sent frá sér. Á sama tíma var gefin út ákæra á hendur sex fyrrverandi starfsmönnum Landsbankans fyrir stórfellda markaðsmisnotkun og umboðssvik. Á meðal hinna ákærðu voru Sigurjón Þ. Árnason og Elín Sigfúsdóttir. skýrsla segir þau saklaus 25. mars 2013 Starfshópur sem vann skýrslu um Guðmund- ar- og Geirfinnsmálið skilaði niðurstöðu sinni. Hún var sú að líklegt væri að sexmenningarnir sem sakfelldir voru fyrir morðin árin 1977 hefðu hvergi komið nálægt málunum. sýruárás í ballett 6. mars 2013 Pavel Dmitritsjenkó, 29 ára dansari við Bolsjoi-ballettinn í Moskvu, játaði að hafa skipulagt sýruárás á Sergei Filin, stjórnanda ballettsins. tveir aðrir menn hafa játað aðild að árásinni. Dmitritsjenkó segist þó ekki hafa ætlað sér að ganga jafn langt og raunin varð. Filin brenndist illa á augum og í andliti þegar brennisteinssýru var skvett framan í hann hinn 17. janúar. Bönkum lokað á Kýpur 16. mars 2013 Efnahagsvandræði Kýpur héldu áfram og um miðjan mánuðinn var bönkum lokað og þeir ekki opnaðir aftur fyrr en tólf dögum síðar. til að koma í veg fyrir hrun fjármálakerfisins fékk ríkið tíu milljarða neyðarlán með samkomu- lagi milli stjórnvalda, Evrópusambandsins, evrópska seðlabankans og alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. tímamót í Grænlandi 6. mars 2013 tímamót urðu á Grænlandi þegar aleqa Hammond varð fyrsti kvenformaður heimastjórnarinnar þar, eftir að flokkur hennar vann sigur í þingkosningum í landinu. sneri aftur til pakistans 24. mars 2013 Pervez Musharraf, fyrrverandi forseti Pakistan, batt enda á fjögurra ára sjálfskipaða útlegð sína til að leiða flokk sinn í þingkosningum. Yfirvöld í landinu lofuðu honum vernd og því gat hann snúið aftur, en hann hafði átt yfir höfði sér fjölda ákæra.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.