Kjarninn - 26.12.2013, Page 28
mars
feb
jan
maí
okt
júní
sept
des
ágú
nóv
júlí
apríl
05/13
Fréttir
Ársins
2013
apríl
erlentinnlent
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
sprengjuárás í
Boston-maraþoninu
15. apríl 2013
Mikil skelfing greip um sig við endamark
Boston-maraþonsins þegar tvær sprengjur
sprungu með þrettán sekúndna millibili. tæp-
lega sex þúsund hlauparar áttu enn eftir að
ljúka hlaupinu þegar sprengingarnar urðu, auk
þess sem mikill fjöldi fólks fylgdist með hlaup-
inu. Þrír áhorfendur létu lífið í sprengingunum
og rúmlega 260 manns særðust, sumir
alvarlega.
Nokkrum dögum síðar lýsti lögreglan eftir
tveimur mönnum sem grunaðir voru um aðild
að sprengjuárásunum. Seinna kom í ljós að
það voru bræðurnir Dzhokhar and tamerlan
tsarnaev, sem höfðu komið til Bandaríkjanna
sem flóttamenn frá Rússlandi. Árásirnar voru
trúarlegs eðlis, bræðurnir voru múslimar og
höfðu árin á undan orðið íslamistar.
Hinn 19. apríl var allri borginni lokað
meðan mjög umfangsmikil leit að sprengju-
mönnunum fór fram. Bræðurnir rændu bíl af
manni sem komst undan og gerði lögregunni
viðvart. til skotbardaga kom þar sem lögreglu-
maður og tamerlan létust. allan daginn var
leitað að Dzhokhar og fannst hann á endanum
særður í báti sem var geymdur við hús í út-
hverfi borgarinnar.
thatcher deyr
8. apríl 2013
Margaret thatcher, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Bretlands og fyrsta konan til að
gegna því embætti, lést í byrjun apríl. Hún
var 87 ára þegar hún lést, en hún er einn um-
deildasti stjórnmálamaður í sögu landsins.
Hópnauðganir vekja óhug á
indlandi
28. apríl 2013
22 eru handteknir eftir að sex ára stúlku var
nauðgað og hún skorin á háls í Nýju-Delí á
indlandi. Hún lifði af. Nokkrum dögum áður
hafði fimm ára stúlku einnig verið nauðgað
af hópi manna. Árásirnar urðu tilefni mikilla
mótmæla og áframhaldandi krafa um að
harðar yrði tekið á kynferðisbrotum.
jarðskjálfti í Kína
20. apríl 2013
Sichuan-hérað í Kína varð illa úti í jarðskjálfta
í seinni hluta apríl. Mörg hundruð létust
og um sex þúsund manns særðust. Skjálft-
inn, sem mældist 7 á Richter-kvarða, varð
eldsnemma að morgni, en á sömu slóðum
varð mikið mannfall aðeins fimm árum fyrr
þegar annar öflugur skjálfti reið þar yfir.
alþjóðlegur afvopnunar-
samningur undirritaður
2. apríl 2013
allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti alþjóðlegan samning um afvopnunar-
mál í fyrsta skipti. Samningurinn setur ýmsar
kvaðir á ríki í vopnaviðskiptum. Norður-Kórea,
Íran og Sýrland voru einu ríkin sem ekki
greiddu atkvæði með samningnum. Framsóknarflokkur stærstur
5. apríl 2013
Framsóknarflokkurinn mældist með 40 pró-
senta fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins
og Stöðvar 2. Samkvæmt könnuninni vantaði
flokkinn einungis einn þingmann til viðbótar
til að ná hreinum meirihluta.
Fórnarlamb stígur fram
8. apríl 2013
Guðný Jóna Kristjánsdóttir steig fram í fyrsta
sinn í Kastljósi. Henni var nauðgað af skóla-
bróður sínum á Húsavík þegar hún var 17 ára.
Í kjölfarið skrifuðu á annað hundrað íbúar í
bænum undir opinbera yfirlýsingu þar sem
lýst var stuðningi við gerandann og dómurinn
sagður rangur. Málið vakti mikla athygli.
segja sig frá al thani-máli
8. apríl 2013
Verjendurnir Gestur Jónsson og Ragnar H.
Hall sögðu sig frá svokölluðu al thani-máli.
Þeir töldu að réttur skjólstæðinga þeirra,
Sigurðar Einarssonar og Ólafs Ólafssonar,
hefði verið þverbrotinn.
Braut þagnarskyldu og þarf
að borga tvær milljónir
11. apríl 2013
Gunnar Þ. andersen, fyrrverandi forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, var fundinn sekur um
brot á þagnarskyldu og gert að greiða tveggja
milljóna króna sekt. Ákæran varðaði öflun
fjárhagslegra upplýsinga um Guðlaug Þór
Þórðarson, sem Gunnar kom í gegnum þriðja
aðila til DV.
samherji kærður
17. apríl 2013
Seðlabanki Íslands lauk rannsókn sinni á
Samherja og kærði fyrirtækið til Sérstaks
saksóknara fyrir brot á gjaldeyrislögum.
Framsókn ótvíræður
sigurvegari og stjórnar-
flokkar bíða afhroð
27. apríl 2013
alþingiskosningar fóru fram. Framsóknar-
flokkurinn vann stórsigur, fékk 24,4 prósent
atkvæða og 19 þingmenn. Sjálfstæðis-
flokkurinn fékk næstverstu útreið sína frá
upphafi en var samt enn stærsti flokkur
landsins. Fráfarandi stjórnarflokkar, Samfylk-
ingin og Vinstri græn, biðu afhroð og fengu
samtals 23,8 prósenta fylgi. tvö ný framboð,
Píratar og Björt framtíð, náðu inn fulltrúum.
athygli vakti að 11,9 prósent greiddra
atkvæða lentu hjá framboðum sem náðu ekki
inn á þing, og féllu þar með niður dauð.
meira en milljarður króna
fyrir Clöru
30. apríl 2013
tilkynnt var að íslenska hugbúnaðar-
fyrirtækið Clara hefði verið selt til bandaríska
fyrirtækisins Jive fyrir meira en milljarð
króna. tveir ungir íslenskir stofnendur
fyrirtækisins áttu um 15 prósent hvor og
högnuðust því talsvert á sölunni.
mannskæðasta slysið
24. apríl 2013
Yfir 1.200 manns létust þegar verksmiðju-
bygging í Dhaka í Bangladess hrundi til
grunna. Í verksmiðjunni voru unnin föt fyrir
margar vestrænar fatakeðjur, og í ljós kom að
hluti byggingarinnar var ólöglegur. Slysið var
hið mannskæðasta af þessu tagi í Bangladess
og beindi athygli heimsins að hörmulegum
kjörum og aðbúnaði verkafólks í fataiðnaði í
landinu. Í kjölfarið lofuðu fatarisarnir bót og
betrun.