Kjarninn - 26.12.2013, Page 29
apríl
mars
feb
jan
okt
júní
sept
des
ágú
nóv
júlí
maí
06/13
Fréttir
Ársins
2013
maí
erlentinnlent
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
Barn fannst í skólpröri
28. maí 2013
Ungbarn fannst í skólpröri í fjölbýlishúsi í
Kína. Svo virtist að sögn kínverskra fjölmiðla
sem barninu hefði verið sturtað niður í
klósettið, en málið vakti gríðarlega athygli um
allan heim. Barnið var nýfæddur fimm kílóa
drengur. Íbúi í húsinu heyrði til drengsins
gráta og gerði lögreglu viðvart. Björgunar-
menn þurftu að saga gat á skólprörið til að
losa drenginn og hann var síðan fluttur á
sjúkrahús. Leitað var að foreldrum drengsins
og móðirin fannst. Hún sagði að um slys hefði
verið að ræða, hún hefði misst drenginn ofan
í klósettið þegar hún fæddi hann. Íbúinn í
fjölbýlishúsinu sem léta vita af drengnum var
móðirin sjálf. Hún var ekki ákærð vegna máls-
ins og drengurinn var útskrifaður af spítala og
dvaldi hjá ömmu sinni og afa.
óeirðir í svíþjóð
24. maí 2013
Óeirðir urðu í Stokkhólmi, kveikt var í skólum
og ráðist á lögreglumenn. Þetta var ekki í
síðasta skipti sem óeirðir brutust út í höfuð-
borg Svíþjóðar á árinu.
þrjár konur sleppa úr
áratuga ánauð
9. maí 2013
Þrjár ungar konur fundust í húsi strætó-
bílstjóra í Ohio í Bandaríkjunum. Þeim hafði
verið haldið föngnum þar í um áratug en
maðurinn, ariel Castro, hafði rænt þeim
öllum og beitt þær kynferðislegu ofbeldi allan
þennan tíma. Ein kvennanna eignaðist barn í
ánauðinni. Michelle Knight, amanda Berry og
Gina DeJesus höfðu allar horfið á sínum tíma.
Þær sluppu með hjálp nágranna Castros. Við
réttarhöldin játaði Castro, sem var 53 ára, að
hafa rænt þeim og misþyrmt. Hann sagðist
vera veikur maður og þjást af kynlífsfíkn. Hann
var dæmdur í lífstíðarfangelsi og konurnar
gátu ávarpað hann við réttarhöldin. „ég eyddi
ellefu árum í helvíti og nú er þitt helvíti rétt
að byrja,“ sagði Knight við hann. Í september
fannst Castro síðan látinn í klefa sínum í fang-
elsinu, þar sem hann hafði hengt sig.
Hermaður myrtur á götu úti
22. maí 2013
Hermaðurinn Lee Rigby var myrtur á götu úti í
London. Ekið var á hann og að því loknu réðust
tveir menn á hann með sveðjum og hnífum.
Michael adebolajo og Michael adebowale eru
íslamskir öfgamenn og sögðu við réttarhöld að
þeir hefðu myrt Rigby vegna þess að breskir
hermenn myrtu múslima á hverjum degi. Þeir
voru fundnir sekir um morðið í lok árs.
dæmt í vatnsendamálinu
3. maí 2013
Dómur féll í svokölluðu Vatnsendamáli í
Hæstarétti. Niðurstaðan var sú að Þorsteinn
Hjaltested, sem taldi sig eiga jörðina og hafði
hagnast gífurlega á að selja hluta hennar, væri
ekki réttmætur eigandi hennar heldur dánarbú
afa hans.
Hrottalegt morð á egilsstöðum
6. maí 2013
Maður um sextugt var myrtur á Egilsstöðum.
Nágranni hans, maður á þrítugsaldri, var
grunaður um verknaðinn og settur í gæslu-
varðhald.
ísland í 17. sæti í eurovision
16. maí 2013
Eyþór ingi Gunnlaugsson söng „ég á líf“ í
undankeppni Eurovision og komst áfram.
tveimur dögum síðar söng hann lagið aftur í
aðalkeppninni og endaði í 17. sæti.
sigur rós í simpsons
19. maí 2013
Hljómsveitin Sigur Rós kom fram í sérstökum
Íslandsþætti af the Simpsons.
ný ríkisstjórn tekur við
22. maí 2013
Ný ríkisstjórn Framsóknarflokks og
Sjálfstæðis flokks var formlega mynduð og
stefnuyfirlýsing hennar kynnt. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson varð yngsti forsætis-
ráðherra Íslandssögunnar, 38 ára gamall.
Bakkabróðir dæmdur
30. maí 2013
Lýður Guðmundsson var dæmdur til að greiða
tvær milljónir króna í sekt vegna brota á hluta-
fjárlögum í lok árs 2008. Bjarnfreður Ólafsson
lögmaður var einnig ákærður í málinu en
sýknaður.