Kjarninn - 26.12.2013, Blaðsíða 31
maí
apríl
mars
feb
jan
okt
sept
des
ágú
nóv
júlí
júní
07/13
Fréttir
Ársins
2013
júní
erlentinnlent
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
ríkisútvarpi Grikklands
lokað
12. júní 2013
Stjórnvöld í Grikklandi ákváðu að loka ríkis-
útvarpinu og uppskáru gríðarlega óánægju.
Starfsmenn neituðu að leggja niður störf og
héldu áfram að sjónvarpa á netinu eftir að
slökkt hafði verið á sendum. Seinna á árinu
var ríkisútvarpið endurreist.
Flóð í evrópu
7. júní 2013
Gríðarleg flóð héldu áfram að valda miklum
skemmdum og röskunum víða um Evrópu.
Heilu bæirnir fóru nánast í kaf.
íslendingur dæmdur í 12 ára
fangelsi í Kaupmannahöfn
3. júní 2013
Guðmundur ingi Þóroddsson, höfuðpaur í
stórfelldu alþjóðlegu smygli á 67 kílóum af
amfetamíni, var dæmdur í tólf ára fangelsi í
Kaupmannahöfn. Sex Íslendingar til viðbótar
voru ákærðir í málinu.
Hemmi Gunn fellur frá
4. júní 2013
Hermann Gunnarsson, Hemmi Gunn,
andaðist 66 ára að aldri. Hemmi var í taílandi
þegar hann lést.
tveir barnaníðingar
dæmdir í fangelsi
7. júní 2013
Karl Vignir Þorsteinsson var dæmdur í sjö ára
fangelsi fyrir ítrekaðar nauðganir og kaup á
vændi af andlega veiku fólki. Sama dag var
maður, þekktur sem Eyþór áhugaljósmyndari,
dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir
ítrekuð kynferðisbrot gegn tólf stúlkum.
Hlé gert á viðræðum við esB
13. júní 2013
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra
fundaði með Stefan Füle, stækkunarstjóra
Evrópusambandsins, og tilkynnti honum að
íslensk stjórnvöld hefðu tekið ákvörðun um að
gera hlé á viðræðum við sambandið.
veiðigjöldin lækkuð
19. júní 2013
Frumvarp um lækkun veiðigjalda var sam-
þykkt á alþingi. Ríkið mun verða af milljarða-
tekjum vegna þeirrar lækkunar.
Berlusconi dæmdur
24. júní 2013
Silvio Berlusconi var dæmdur í fangelsi eftir
margra ára málarekstur. Hann fékk sjö ára
dóm fyrir að hafa borgað stúlku undir lögaldri
fyrir kynlíf og fyrir valdníðslu. Þessi fyrr-
verandi forsætisráðherra má vegna dómsins
aldrei gegna opinberu embætti aftur.
Fyrstu uppljóstranir
snowdens
7. júní 2013
Fyrstu uppljóstranir Edwards Snowden komu
fyrir sjónir almennings. Þjóðaröryggisstofnun
Bandaríkjanna, NSa, hafði um langt skeið
haft aðgang að persónuupplýsingum fólks
í gegnum samskiptamiðla. Snowden hafði
safnað saman gríðarlegu magni gagna þegar
hann starfaði fyrir NSa. Þetta var upphafið að
stærsta fréttamáli ársins, og enn eru ekki öll
kurl komin til grafar. Snowden kom fram í fjöl-
miðlum þegar hann hafði flúið Bandaríkin til
Hong Kong, þaðan sem hann fór til Rússlands.
Þar dvelur hann enn.