Kjarninn - 26.12.2013, Síða 37
nóv
okt
sept
ágú
júlí
júní
maí
apríl
mars
feb
jan
des
13/13
Fréttir
Ársins
2013
desember
erlentinnlent
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
nelson mandela látinn
5. desember 2013
Nelson Mandela, frelsishetja og fyrrverandi
forseti Suður-afríku, lést 95 ára að aldri.
Mandela hafði lengið barist við veikindi og
var lagður inn á spítala í júní vegna lungna-
sýkingar, þar sem hann dvaldi til dauðadags.
Fjölmargir minntust Mandela fyrir
baráttuþrek og áhrif á lok aðskilnaðarstefnu
í landinu. Nokkrum dögum eftir andlátið var
gríðarstór minningarathöfn haldin um hann
í Jóhannesarborg þar sem tæplega hundrað
þjóðarleiðtogar voru á meðal viðstaddra. Með-
al þeirra sem tóku til máls voru Barack Obama
Bandaríkjaforseti og Desmond tutu erki biskup,
sem hélt áhrifaríka ræðu. allt slíkt féll þó
fljótt í skuggann af öðrum atburðum. Í fyrsta
lagi birtust myndir af þjóðarleiðtogum að
taka sjálfsmyndir á meðan á athöfninni stóð.
Forsætisráðherra Danmerkur, Helle thorning-
Schmidt, David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, og Barack Obama Bandaríkjaforseti
tóku eina slíka. Daginn eftir kom svo í ljós að
táknmálstúlkur, sem túlkaði meðal annars
ræðu Bandaríkjaforseta, hafði alls ekki verið
að túlka. túlkurinn kom fram í fjölmiðlum
og sagðist veikur á geði, auk þess sem kom á
daginn að hann hefði verið dæmdur fyrir ýmsa
glæpi.
Kim jong-un lætur taka
frænda sinn af lífi
13. desember 2013
Fréttir bárust af því að einn valdamesti maður
í Norður-Kóreu, Chang Song-thaek, hefði
verið tekinn af lífi. Nokkrum dögum fyrr hafði
hann verið sviptur öllum titlum sínum og sak-
aður um ýmsa glæpi, meðal annars landráð
og að vera of afslappaður. Hann var frændi
Kim Jong-un, leiðtoga landsins, og talinn
lærifaðir hans. Því komu fréttirnar á óvart
og spurningar vöknuðu um valdabaráttuna í
landinu.
pútín náðar þúsundir fanga
19. desember 2013
Mikhail Khodorkovsky, fyrrverandi olíubarón
og ríkasti maður Rússlands, var meðal 25
þúsund fanga sem voru náðaðir af Vladimír
Pútín Rússlandsforseta. Khodorkovsky átti
að sleppa úr fangelsi á næsta ári en fréttir
höfðu þó verið sagðar af því að til stæði að
ákæra hann í þriðja sinn. af því verður ekki
því Khodorkovsky er laus úr fangelsi og lét
það verða sitt fyrsta verk að fara úr landi,
til Þýskalands. Pútín ákvað að náða allan
þennan fjölda í tilefni af tuttugu ára afmæli
rússnesku stjórnarskráarinnar.
obama ýjar að breytingum
hjá nsa
20. desember 2013
Barack Obama Bandaríkjaforseti hélt
blaðamannafund við lok vinnuársins í Banda-
ríkjunum. Þar gaf hann í skyn að breytinga
væri þörf á Þjóðaröryggisstofnuninni NSa,
sem hefur verið mikið í sviðsljósinu eftir
uppljóstranir Edwards Snowden. Hann viður-
kenndi að stofnunin hefði getað stundað önn-
ur og betri vinnubrögð en gagnrýndi Snowden
fyrir uppljóstranir sínar, sem hann sagði hafa
valdið ónauðsynlegum skaða.
þak hrynur í miðri
leiksýningu
19. desember 2013
Hluti af lofti apollo-leikhússins í London
hrundi í miðri leiksýningu á Furðulegu hátta-
lagi hunds um nótt. Mikil skelfing greip um
sig og 76 manns slösuðust, þar af sjö alvar-
lega. Enginn slasaðist þó lífshættulega.
Hjálparkokkar sýknaðir
20. desember 2013
aðstoðarkonur sjónvarpskonunnar Nigellu
Lawson voru sýknaðar af ákæru um að
hafa svikið hundruð milljóna frá sjónvarps-
kokkinum og eiginmanni hennar. Málið vakti
mikla athygli enda var málsvörn aðstoðar-
kvennanna sú að þær hefðu mátt eyða
peningum hjónanna gegn því að upplýsa ekki
um mikla eiturlyfja neyslu Nigellu.
Úkraína velur rússland
8. desember 2013
Fjölmenn mótmæli voru haldin vegna utan-
ríkisstefnu stjórnvalda í Úkraínu. Stjórnvöld
voru langt komin í samningaviðræðum um
samstarf við Evrópusambandið en hættu við. Í
kjölfarið var gengið til samninga við Rússa.
skrúfað fyrir ipa-styrki
3. desember 2013
tilkynnt var að Evrópusambandið ætlaði að
hætta öllum iPa-verkefnum sem hafin voru
á Íslandi í kjölfar þess að Ísland gerði hlé á
viðræðum við sambandið.
nám í ólestri
3. desember 2013
Niðurstöður nýrrar PiSa-rannsóknar voru
kynntar. Samkvæmt henni fer frammistaða
íslenskra námsmanna versnandi. Ísland er,
ásamt Svíþjóð, með lökustu frammistöðu allra
Norðurlandaríkja.
Hrottar fyrir dóm
9. desember 2013
aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í
Stokkseyrarmálinu svokallaða.
þungir dómar í al thani-máli
12. desember 2013
Sakborningar í al thani-málinu svokallaða
hlutu þyngstu dóma sem fallið hafa vegna
auðgunarbrota hérlendis. Hreiðar Már
Sigurðsson hlaut þyngsta dóminn, fimm og
hálfs árs fangelsi. Sigurður Einarsson, Ólafur
Ólafsson og Magnús Guðmundsson fengu
einnig þunga dóma. Þeir hafa allir áfrýjað
niðurstöðunni til Hæstaréttar.
Áttfaldur pottur í fyrsta sinn
14. desember 2013
Lottópotturinn var áttfaldur í fyrsta sinn.
Lottóæði rann á landann.
Fjárlagafrumvarp samþykkt
17. desember 2013
Fjárlagafrumvarp næsta árs var samþykkt. Í
kjölfarið var hægt að semja um þinglok.
Útvarpsstjóri segir af sér
17. desember 2013
Páll Magnússon lét af störfum sem útvarps-
stjóri. Hann taldi sig ekki njóta nægilegs
trausts í stjórn RÚV. Stjórnarformaður sagði
að Páli hefði verið tilkynnt að staða hans yrði
auglýst. Í kjölfarið hefði hann ákveðið að
hætta.