Kjarninn - 26.12.2013, Qupperneq 38
01/01 kjarninn Viðtal
Þ
að hefur aldrei heillað Yrsu Sigurðardóttur að
hætta að vinna sem verkfræðingur og einbeita
sér aðeins að skáldskapnum þrátt fyrir að hún
sé með vinsælli rithöfundum landsins og njóti
mikillar velgengni erlendis.
„Þetta er svona akkeri, mér finnst þetta mjög skemmti-
legt, þetta er það sem ég lærði og ég hef mikla ánægju af
starfi mínu. Kannski hætti ég að skrifa á morgun, hver veit.
Þetta er ekki hlutur sem maður getur treyst á til lengri tíma.
Mér líður vel með þetta svona og ætla að reyna að halda
áfram að vinna í eins stóru hlutastarfi og ég get.“ Hún fer
hins vegar nú orðið svo mikið til útlanda vegna bóka sinna
að hún getur ekki lengur unnið í fullu starfi. Þegar hún lýkur
við útgáfu bókar hefur hún
dregist aftur úr í vinnunni
og því er desember mjög
annasamur.
Nýlega bárust fréttir af
því að þættir yrðu gerðir upp
úr bókum Yrsu. Hún segist
ekkert koma að þeim málum.
„Ég veit minnst af öllum
held ég. Þetta er svo ofsalega
ólíkur miðill, sjónvarp og
kvikmyndir, miðað við bók,
að það er sér list að skrifa
handrit að slíku. Ég veit nóg
um það til að vita að ég bæti
engu þar við og yrði bara til
trafala.“ Og þrátt fyrir að njóta mikilla vinsælda erlendis, og
vera komin á samning hjá stórri norræni umboðsskrifstofu,
getur hún ekki hugsað sér að skrifa fyrir annan markað en
Ísland. „Mínir lesendur, sem ég er að skrifa fyrir, eru Ís-
lendingar.“
Miklu skiptir að hafa kvenkyns söguhetjur
Yrsa ætlar að byrja að skrifa nýja bók nú í jólafríinu sínu, en
hún er líka með önnur verkefni á prjónunum. „Ég og Lilja
Sigurðardóttir ætlum í samstarfsverkefni og skrifa hryllings-
sögu saman. Ég hlakka mikið til þess, mig hefur lengi langað
að prófa að skrifa með einhverjum.“ Ef það gengur vel má því
jafnvel eiga von á tveimur bókum frá Yrsu á næsta ári.
Henni þykir skipta máli að hafa kvenkyns söguhetjur
í bókum sínum. Það gleður hana líka mikið að bækurnar
hennar virðist höfða jafnt til kvenna sem karla. Hún er hugsi
yfir stöðu kvenna í bókmenntum, aðeins tvær konur séu á
metsölulistum núna. „Þetta er skrítið vegna þess að konur
lesa meira en karlar. Við þurfum svolítið að fara að velta
þessu fyrir okkur. Það er ekki svo að karlkyns höfundarnir
séu svona miklu, miklu, miklu betri en konurnar að við rétt
komum einum til tveimur fulltrúum inn á þennan lista. Það
er ekki þannig.“
Meðal þess sem Yrsa veltir fyrir sér er barnabækurnar,
en hún hóf sinn feril sem slíkur og segir að nema mikið
hafi breyst síðan þá séu konur enn í miklum meirihluta
höfunda. Samt eru efstu fimm bækurnar á metsölulistum nú
eftir karla. „Líkast til gæti skýringin verið í því tilfelli þessi
Pisakönnun [...] að fólk sé að kaupa frekar bækur fyrir stráka.
En þá komum við aftur að því að það þykir í lagi að gefa
stelpu bók um strák en það þykir ekki í lagi að gefa strák bók
um stelpu. Þetta litar svo áfram upp úr, þannig að við konur
venjumst því frá unga aldri að lesa um stráka og þeirra
hugarheim og svo áfram upp í menn, en það sama á sér ekki
stað með drengi.“
Viðtal
Þórunn Elísabet
Bogadóttir
thorunn@kjarninn.is
Yrsa Sigurðardóttir í viðtali við Kjarnann
Smelltu hér fyrir neðan til að streyma myndskeiðinu
Lengd: 15:54
athugaðu að tækið þitt þarf
að vera nettengt til að sækja
myndskeiðið.
Deildu með
umheiminum
ViðMælandi ViKunnar Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur
aldrei freistað að
vera rithöfundur í
IXOOXVWDUõ
MYndband