Kjarninn - 26.12.2013, Qupperneq 41

Kjarninn - 26.12.2013, Qupperneq 41
01/01 kjarninn tÓNLiSt Framúrskarandi íslensk tónlist á árinu 2013 Deildu með umheiminum tónlist Benedikt Reynisson Futuregrapher Í ár komu út nokkrar afbragðs raftónlistarskífur og þær sem helst bera af eru samstarfsskífa Futuregrapher, Gallery Six og Veronique, Either Way með tvíeykinu Gluteus Maximus og Skýjaflétta með Sólrúnu Sumarliðadóttur. Árni Grétar Jóhannsson hefur í dágóðan tíma farið fyrir einyrkjasveitnni Futuregrapher og hefur ýmist sent frá sér ágengt jungle og drum and bass eða áferðarmjúka sveimtónlist (e. ambient). Crystal Lagoon EP er samstarfs- verkefni hans, japanska raftónlistarmannsins Gallery Six og kanadíska sellóleikarans Veronique. Saman framreiða þau dramatíska, hægfljótandi og krefjandi sveimskífu sem er að mestu ósungin. Frábært samspil hljóðgervla, hljóðsarpa og strengja er algjört gúmmelaði fyrir eyru og kyndir vel undir öðrum skynvitum. Either Way er tónlist samin af Gluteus Maximus, sem er skipuð þeim Margeir St. Ingólfssyni og Stephan Stephensen, fyrir DVD-útgáfu íslensku kvikmyndarinnar Á annan veg. Either Way er mjög heilsteypt og naumhyggjulegt tónverk sem skiptist í níu hluta þar sem hliðrænir hljóðgervlar, hljóð- breytar og akústísk hljóðfæri dansa saman á örfínni línu og útkoman er mjög flott. Sólrún Sumarliðadóttir er best þekkt fyrir störf sín með hljómsveitinni Amiina, sem hún hefur verið meðlimur í frá upphafi. Skýjaflétta er tónlist sem hún samdi fyrir dans- verkin Skýjaborg og Fetta Bretta sem eru bæði ætluð yngstu kynslóðinni. Tónlistina samdi Sólrún með dyggri aðstoð tveggja ára sonar síns og er auðveldlega hægt að mæla með skífunni fyrir bæði börn og fullorðna. Af öðrum framúrskarandi raftónlistarplötum má nefna Tracing Echoes með Bloodgroup, Samaris með Samaris, This Time We Go Together með Ruxpin og White Mountain með Úlfi. rapp og hipphopp Íslenska rapp- og hipphoppárið var ekkert sérlega gjöfult þó svo að margt nýtt og spennandi sé í gangi í senunni. Þeir sem eru hvað mest spennandi í dag eru án efa listamenn á borð við Cell7, Lord Pusswhip, GERViSYKUR, Skuggar Reykja víkur og Kött Grá Pjé. Besta hipphoppskífa ársins er án nokkurs vafa nýjasta breiðskífa Cell7 sem ber heitið CellF. Fyrir þessari ein- yrkjasveit fer Ragna Kjartansdóttir, sem fyrst gerði garðinn frægan með hljómsveit sinni Subterranean seint á síðustu öld. Cellf er búinn að vera mörg ár í vinnslu hjá Rögnu og er greinilegt að hún hefur nýtt tímann vel, þar sem afrakstur- inn er ein besta hipphoppskífa sem komið hefur út á Íslandi. Cellf er ekki hreinræktuð hipphoppskífa því á henni má heyra indversk áhrif í bland við nýdiskó, sálartónlist, djass og fleira. Framúrskarandi og alvöru hipphoppskífa. jaðartónlist af öllum gerðum Jaðartónlistargeirinn er mjög víður og fjölbreyttur og margt sniðugt og ferskt er í gangi þar. Margar dúndurgóðar og ólíkar útgáfur litu dagsins ljós í ár. Nokkrar báru þó af hvað varðar ferskleika og hressilegheit. Múm gaf út Smilewound, sem er sjötta breiðskífa hennar, en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hefur hún flogið lágt undir radarinn hér á landi. Sveitin hefur sjaldan eða aldrei verið einbeittari og á Smilewound má finna nokkur af bestu lögum hennar á ferlinum. Lög eins og Candlestick, The Colorful Stabwound, Toothweels og Sweet Impressions bera af þó svo að öll hin lögin séu góð. Rokksextettinn Grísalappalísa kom á síðasta ári eins og ferskur andvari inn í íslensku rokksenuna, sem hefur verið nokkuð dauf undanfarið. Hljómsveitina skipa nú- og fyrr- verandi meðlimir sveita á borð við The Heavy Experience, Jakobínarína, Oyama og Sudden Weather Change. Fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Ali, inniheldur fyrsta flokks bræðing af síðpönki, nýbylgju- og súrkálsrokki. Sveitina leiða tveir ólíkir söngvarar sem skreyta tónlistina með hárbeittum textum um tómhyggju, ógæfuna sem stundum fylgir reyk- vísku næturlífi og vonlaust ástarsamband við unga konu sem heitir Lísa. Mammút sendi eftir langa bið frá sér sína þriðju og lang- bestu breiðskífu í ár. Sveitin var margsinnis búin að slá út- gáfu Komdu til mín svarta systir á frest þar sem með limirnir voru ekki fullkomlega sáttir við það efni sem þeir höfðu unnið að. Lagasmíðar Mammút hafa aldrei vegið jafnmikið og á þessari vel lukkuðu skífu, dramatíkin er í passlegu há- marki og Katrína Mogensen festir sig enn frekar í sessi sem ein af sérstæðustu söngkonum Íslands. Íslenski Kaliforníubúinn Þórir Bogason hefur síðan 2009 farið fyrir hljómsveitinni Just Another Snake Cult og í ár kom út önnur breiðskífa hennar, sem ber heitið Cupid Makes a Fool of Me. Tónlist Just Another Snake Cult líkist engu sem er eða hefur í gangi á Íslandi. Áhrifin koma víða að og má á plötunni greina stílbrigði frá Brian Wilson, Ariel Pink, ELO, Billy Bragg og Of Montreal en án þess að það sé verið að stela frá einhverjum. Öllu er blandað listilega vel saman og út- koman er gómsætt 21. aldar sýrupopp. Meðal annarra jaðarplatna sem vert er að nefna eru Friður með Ojba Rasta, I Wanna með Oyama, Eliminate Evil, Revive Good Times með Benna Hemm Hemm, Flowers með Sin Fang, Glamúr úr geimnum með DJ flugvél og geimskip, Human með Nolo, Ælulykt með Þóri Georg, Tónlist fyrir Hana með Per: Segulsvið, Talking About the Weather með Lay Low, Head- phones með Jóhanni Kristinssyni, Northern Comfort með Tilbury og Autumn Skies með Snorra Helgasyni. nýklassík og samtímatónlist Nokkrar framúrskarandi breiðskífur komu út í flokki nýklassíkur og samtímatónlistar á árinu og einna áhuga- verðastar eru breiðskífur ungu tónskáldanna Gunnars Andreasar Kristinssonar og Daníels Bjarnasonar. Þær eru mjög ólíkar; Patterns með Gunnari sækir í íslenska þjóðlaga- arfinn og er naumhyggjuleg á meðan Over Light Earth með Daníel er ómstríð, ágeng og nútímaleg. þungarokk Af þungarokki eru helst þrjár skífur sem bara af í ár, ekki síst nýjasta breiðskífa Kópavogssveitarinnar Strigaskór nr. 42. Armadillo heitir hún og er fyrsta útgáfa sveitarinn- ar í nítján ár. Hún er ákaflega beinskeytt, framsækin og tilrauna kennd skífa sem gefur fyrri verkum sveitarinnar ekkert eftir og er ekki að heyra að hún hafi legið í dvala. Í svartmálmsdeildinni komu út tvær framúrskarandi skífur með hljómsveitunum Carpe Noctem og Wormlust. The Feral Wisdom heitir breiðskífa Wormlust og er hún stórfengleg og öfgakennd svartmálms sýra af bestu gerð. In Terra Profugus heitir afurð Carpe Noctem. Þar er um afar metnaðarfullt verk að ræða og er sveitin víst búin að landa útgáfu erlendis. Gluteus maximus sólrún sumarliðadóttir Cell7 múm Grísalappalísa mammút just another snake Cult Gunnar andreas strigaskór nr. 42 Carpe noctem Á rið 2013 hefur verið mjög gjöfult og blómlegt tónlistarár með útgáfu margra frábærra platna yngra og eldra tónlistarfólks og hljóm- sveita. Sala á tónlist hefur ekki beint slegið met og tala sumir hljómplötuútgefendur um hrun í sölu miðað við síðustu ár. Þó hafa síðustu tvö ár verið mjög óhefðbundin að því leyti að á þeim komu út tvær afger- andi söluháar plötur sem náðu sölutölum sem aldrei áður hafa náðst á svo stuttum tíma á Íslandi. Í þessari umfjöllun er þó ekki ætlunin að fara yfir söluhæstu plötur ársins heldur þær plötur sem greinarhöfundi finnst bera af á árinu sem senn líður undir lok. raftónlist Smelltu til að hlusta á in Germ með Futuregrapher, Gallery Six & Veronique Smelltu til að hlusta á Either Way með Gluteus Maximus Smelltu til að hlusta á Skýjafléttu með Sólrúnu Sumarliðadóttur Smelltu til að hlusta á that‘s Wassup með Cell7 Smelltu til að hlusta á Candlestick með Múm Smelltu til að hlusta á allt má (má út) með Grísalappalísu Smelltu til að hlusta á Blóðberg með Mammút Smelltu til að hlusta á inconstant Moon með Just another Snake Cult Smelltu til að hlusta á adanac með Strigaskór nr. 42 Smelltu til að hlusta á Sex augu, tólf stjörnur með Wormlust Smelltu til að hlusta á Vitriol með Carpe Noctem
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Kjarninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.