Kjarninn - 26.12.2013, Page 52
05/07 kjarninn tÓNLiSt
að sveitin hafi samið við stórt plötu fyrirtæki.
Frá sama landi en talsvert öðruvísi hljómi sendi
Psyke Project frá sér plötuna Guillotine – sem ætti ekki að
svíkja unnendur harðkjarna/metal og/eða sveitarinnar, sem
virðist eingöngu verða betri og betri með hverri plötu.
Sennilega umtalaðasta plata innan geirans var önnur
plata Deafheaven – Sunbather. Því má líklega þakka hversu
óvenju aðgengileg hún er miðað við tónlistarstefnuna, en
hún blandar svartmálmi saman við melódískar tónsmíðar.
Modern Life Is War sendi frá sér fyrstu plötu sína síðan
hún lagði upp laupana árið 2008. Henni var afar vel tekið og
er ekki að heyra að hljómsveitin hafi verið óvirk svo lengi.
Platan, Fever Hunting, var unnin af Kurt Ballou úr Converge
og kom út hjá Deathwish, sem varla virðast stíga feilspor.
Cult of Luna gaf út hina stórgóðu Vertikal. Hljómsveitin
hefur einstaklega næmt eyra fyrir grípandi melódíum og nær
sem fyrr að flétta þær léttilega við öskrandi þunga.
Meðal annarra hljómsveita sem gerðu það gott á árinu
með útgáfum sínum í harðari kantinum má nefna SubRosa ,
Carcass og Watain.
Af hipphopp/R&B/rappútgáfum ársins má nefna plötur
Earl Sweatshirt, Drake og Childish Gambino, sem allar voru
prýðilegar. Þær sem áttu árið hvað mest að mati undirritaðr-
ar í þeirri stefnu voru þó óneitanlega plöturnar Yeezus, Wolf
og Government Plates.
Enginn skortur virðist vera á sjálfsáliti Kanye West, líkt
og enginn skortur er á pottþéttum plötum frá kappanum.
Yeezus er talsvert frábrugðin síðustu plötu Kanye, myrkt og
metnaðarfullt verk sem mótar Kanye enn frekar sem tónlist-
armann.
Tyler, the Creator sendi frá sér plötuna Wolf, sem er rök-
rétt framhald plötu hans Goblin frá 2011 og ætti ekki að svíkja
aðdáendur rapparans. Tyler er kjaftfor að vanda og sparar
ekki kveðjurnar heim í stofu en við það hjálpar einvalalið á
borð við Frank Ocean, Erykuh Badu og Pharrell.
Death Grips gaf út Government Plates í nóvember sem
frítt niðurhal við góðar undirtektir. Sveitin er með þeim