Kjarninn - 26.12.2013, Blaðsíða 74
04/07 kjarninn tÖLVULEiKiR
hvort sem það er línuleg dagskrá sjónvarpsstöðvanna eða
Netflix eða álíka streymisþjónustur, er meðal þess sem
Microsoft menn eru að tala um. Einnig á að keyra grimmt á
svokallað SmartGlass, sem gerir fólki kleift að nota snjalltæki
til að tengjast vélinni með ýmsum hætti, ásamt því að hampa
nýrri útgáfu af Kinect sem nemur spilarann og hreyfingar
hans. Sony hefur flutt þau skilaboð að þetta sé leikjatölva
fyrir alvöru leiki og hefur fyrirtækið
einsett sér að gera óháðum framleið-
endum sem hæst undir höfði. Það gerði
Microsoft sérstaklega vel á Xbox 360 en
hefur klúðrað lítillega fyrir Xbox One
þó að einhver skref hafi verið tekin í
rétta átt.
Viðtökur þessara véla frá Sony og
Microsoft voru eins og svart og hvítt.
Internetið, bæði almúginn og tröllin,
elskuðu Playstation 4 og gerðu grín að
Xbox One, en á þeim bænum klúðruðu
menn skilaboðunum algjörlega með
því að tala of mikið um allt annað en tölvuleikina. Með
enda lausum viðtölum, myndböndum á samfélagsmiðlum
og fréttatilkynningum náðu Microsoft-menn þó að rétta
úr kútnum og koma því til skila að auðvitað yrði Xbox One
auðvitað líka hörku leikjatölva, gerð fyrir tölvuleiki fyrst og
fremst. Þeim tókst það vel til að Sony byrjaði þá að breyta sín-
um skilaboð til að jafna leikinn. Það sem er nýtt í þessari kyn-
slóð sem helst er talað um er auðvitað hvað þær eru öflugar
(en ekki hvað) og allt loksins í fullri háskerpu og enn betri
fjölspilun, auk þess sem hægt er að kaupa leikina á útgáfu-
degi í vélinni sjálfri í formi niðurhals svo eigendur þeirra
þurfi ekki að labba út í búð og þannig fórna dýrmætum
tíma sem mætti eyða í leikjaspilun. Dómar helstu miðla gefa
vélunum svipaða einkunn en það sem skiptir öllu er leikirnir
allir sem eiga eftir að koma. Microsoft hlýtur að fagna, enda
fær vélin miklu betri dóma en internetið taldi að hún myndi
fá. Leikirnir sem hafa komið út í dag fá þó misjafna dóma.
Öðruvísi skotleikur
Bioshock-leikirnir
eru með útpældum
söguþræði og vönduðu
umhverfi. Bioshock
infinite hefur hlotið
sérlega mikið lof.