Kjarninn - 26.12.2013, Blaðsíða 79
Bergur ebbi Benediktsson
Grínisti og lögfræðingur
1 Hver eru uppáhalds áramótaskaupin þín og af hverju?ég get ómögulega sagt hver eru
uppáhalds áramótaskaupin mín. Þetta
rennur allt saman í minningunni. Hvar
og hvernig getur maður horft á þetta? Er
fólk að hlaða þessu niður á torrent? Þetta
er allavega ekki til á DVD. ég horfi bara á
þetta tvisvar, á gamlársdag og svo þegar
það er endursýnt daginn eftir. Yfirleitt er ég
mjög sáttur en að vísu fannst mér það síðra
árið 2012 en oft áður. Eftirminnilegustu
atriðin undanfarin ár eru þegar Þorsteinn
Bachmann lék Björgólf thor. ætli það hafi
ekki verið í fyrsta hruns-uppgjörs skaupinu.
Svo var „Dabbi kóngur“ líka gott atriði, Örn
Árnason að syngja Puff Daddy og Hannes
Hólmsteinn og félagarnir í kringum hann
eins og gengi í rappmyndböndum. Þetta dót
var gróft og djarft.
Nú tel ég hins vegar að það sé minni
stemning fyrir ádeilu á spillingu. Það er að
vísu örugglega alveg jafn mikil spilling á
landinu nú eins og oft áður en ég held að
það ætti frekar að gera grín að kverúlöntum,
fólki sem telur sig vita allt um hvernig
landinu skuli stjórnað og hvernig fólk eigi
að haga sér. Það er pest okkar tíma. Svo má
líka bara vera venjulegt grín, fólk að festast
í rúllustigum og svoleiðis. Það þarf ekki
allt að vera ádeila, ef skaupið
verður þannig þá er það bara
fallið í sömu gryfju og téðir
kverúlantar.
2 Hvaða þrjú atvik á árinu eiga klárlega heima í komandi áramótaskaupi? af
hverju?
töp og sigrar þjóðarinnar eru alltaf
vinsælt efni í þessum árlega spéspegli.
Við byrjuðum árið á því að „vinna“ icesave-
málið. ég held að það verði að koma inn á
það í skaupinu. Við höfðum sama viðhorf
gagnvart þessu eins og íþrótta kappleik.
Þess vegna var það líka súrt þegar við
töpuðum mikilvægasta fótboltaleik Íslands-
sögunnar, umspilinu gegn Króatíu. Þess
vegna má gera grín að tárum Eiðs Smára þó
það hafi verið fallegt augnablik, því allt sem
sameinar þjóðina á erindi í skaupið.
Fyrir utan þetta tvennt þurfa alþingis-
kosningarnar að hafa sinn sess í skaupinu.
Hvers vegna er kominn flokkur á alþingi
sem kennir sig við sjóræningja? Hvaða holu
í þjóðarsálinni eru þeir að fylla? Hvers vegna
voru svona mörg sérframboð og hvers vegna
fengu þau öll svona ömurlega útkomu þrátt
fyrir að vera boðberar „réttlætis, lýðræðis
og sanngirni“?
skaupið krufið
01/01 kjarninn ÁRaMÓtaSKaUPið
dr. Gunni
tónlistarmaður
1 Hver eru uppáhalds áramótaskaupin þín og af hverju?
ég verð nú bara að játa
upp á mig að muna ekki
skaupin sem afmarkaða heild,
maður man bara eitt og eitt
atriði og hefur því á tilfinningunni
að við komandi skaup hafi verið tipp
topp. Stundum hafa skaupin verið svo
ferlega slöpp að manni stekkur ekki bros.
En allavega: Gísli Rúnar að leika Árna
Johnsen sama ár og dúka-skandallinn
hans kom upp var ógeðslega gott atriði.
Það var skaupið 2001. Árið eftir var Pálmi
Gestsson líklega látinn leika Ólaf Ragnar
að syngja „ég vil ekki vera svona, með hárið
eins og gömul kona“, sem var líka rosa gott
og minnisstætt. Kreppuskaupið 2009 var
rosa vel heppnað, þjóðin búin að vera hálf
sturluð allt árið og skaupið gott eftir því.
Þetta skaup náði hámarki með lokalaginu,
Páli Óskari að syngja Skrúð-krimmarnir.
2 Hvaða þrjú atvik á árinu eiga klárlega heima í komandi áramótaskaupi?ég gæti trúað að Óli Geir og
Keflavík Music Festival komi eitthvað
fyrir og gott ef ekki Gylfi ægisson og
typpasleikjóarnir hans líka. Svo hlýtur bara
Framsóknarflokkurinn að koma eitthvað
fyrir, hið velheppnaða kosningatrix sem
kjósendur löptu upp og svo verða Vigdís
Hauksdóttir og frík-skóaður Sigmundur
Davíð líklega áberand, þótt þau sjái nú aðal-
lega sjálf um að gera grín að sér.
Helga Braga jónsdóttir
leikkona
1Hver eru uppáhalds áramótaskaupin þín og af hverju? Áramótaskaupin renna nú út í
eitt, líka þau sem ég hef leikið í. Mér fannst
skaupið 1994 mjög gott, líka kvennaskaupið
þar sem Edda Bjö. sagðist mála með sínum
„fýsísku penslum“ og skaupið þar sem Gísli
Rúnar Jónssson lék Skattmann.
2 Hvaða þrjú atvik á árinu eiga klárlega heima í komandi áramótaskaupi? af hverju?
Klárlega Vodafonlekinn og RÚV-
uppsagnirnar, sem voru
eins og senur í gamalli
absúrd austur-evrópskri
bíómynd um njósnir og
uppsagnir. Þó að það sé
sorglegt þarf einmitt að gera
grín að vaxandi stéttaskiptingu
sem sýnir sig t.d. í kaupum á 8
milljóna KRÓNa sjónvörpum og að lítil
börn séu að fá iPhone 5s í skóinn á meðan
raðir í matarúthlutun hjá fjölskylduhjálpinni
lengjast, þetta er algjörlega fáránlegt og
skaupið þarf að stinga á þessu!
sunna valgerðardóttir
fréttakona á RÚV
1 Hver eru uppáhalds áramótaskaupin þín og af hverju?
1993 – Þetta var í fyrsta
sinn sem ég skildi hvers vegna
fólk hló að Skaupinu. Ólafía
Hrönn Jónsdóttir náði Björk
Guðmundsdóttur í raun betur en hún
sjálf og Ríkisútvarpið ætti tvímælalaust
að taka upp hinn hárbeitta spjallþátt „Hvað
á þetta að þýða eiginlega?“
2008 – annars vegar fékk sonur minn,
þá þriggja ára, lokaatriðið alvarlega á heil-
ann, horfði á það nær daglega, söng það
hástöfum og dansaði abba-sporin þess á
milli, sem var mjög sætt. Hins vegar bjó ég
erlendis á þessu stórmerkilega ári og þótti
því vænt um að fá það súmmerað upp í grín
þegar því lauk. Svo var það ansi fyndið.
2011 – Kannski er það á listanum
vegna þess að ég man enn hversu mikið
ég hló. Þetta var þétt og fyndið Skaup út
í gegn, vel leikið og skemmtilega fléttað.
Ólafur Elías son og Hildur Líf eru í sérstöku
uppáhaldi.
2 Hvaða þrjú atvik á árinu eiga klárlega heima í komandi áramótaskaupi? af hverju?
Strigaskórinn hans Sigmundar. að láta
sér detta í hug að hitta kollega þína, sem
eru óvart meðal valdamesta fólks í heimi,
í einum strigaskó og einum spariskó er
rannsóknar efni. Hvernig er hægt að gera
þetta fyndnara veit ég hins vegar ekki.
Vodafone-árásin. Ráðherrar koma við
sögu sem höfundar og móttakendur SMS-
anna sem lekið var á netið og það ætti að
vera auðvelt að leika sér með það. Svo mætti
auðvitað flétta inn í ástæður árás tyrkneska
hakkarans, sem var augljóslega að vinna
fyrir íslensku stjórnarandstöðuna.
Yfirbugaði flugdólgurinn. Það er í sjálfu
sér ekkert gamanmál að drekka yfir sig í
flugvél, vera yfirbugaður og teipaður niður
af samferðarmönnum þínum og enda sem
meme á internetinu. Nema stundum. Það
ætti ekki að vera flókið að skipta út þessum
óþekkta manni fyrir einhvern aðeins meira
þekktan. Sem ætti kannski að ferðast eitt-
hvað til útlanda sökum starfs síns.