Kjarninn - 26.12.2013, Page 86
04/06 kjarninn StJÓRNMÁL
Merkel í raðir Kristilega Demókrataflokksins (CDU), sem
er frjálslyndur íhaldsflokkur á miðjum hægri væng þýskra
stjórnmála. Á þeim tíma voru valdastöður flokksins yfir-
leitt skipaðar vestur-þýskum karlmönnum. Merkel gegndi
nokkrum ráðherrraembættum í stjórnartíð Helmut Kohl,
þangað til hún varð kanslari árið 2005. Það kom mörgum á
óvart að hinn íhaldssami flokkur skyldi hafa valið sér austur-
þýskan, kvenkyns leiðtoga sem jafnframt var fráskilin og
barnlaus.
alþýðleg en skortir sjarma
Merkel er gríðarlega vinsæl í Þýskalandi, jafnvel vinsælli en
flokkurinn sem hún stendur í forsvari fyrir. Hinn almenni
Þjóðverji kann að meta stjórnunarstíl hennar og alþýðlega
framkomu en stöðugt efnahagsástand landsins hefur eflaust
einnig eitthvað að segja um vinsældir hennar. Undir stjórn
Merkel hefur jafnvægi haldist í þýsku efnahagslífi þrátt
fyrir alþjóðlegt efnahagshrun. Útflutningsiðnaðurinn hefur
haldist nokkuð sterkur og atvinnuleysishlutfallið er með
því lægsta í Evrópu. Stjórnunarstíll Merkel vekur traust hjá
Þjóðverjum, en hún virkar ávallt róleg og yfirveguð. Hún
íhugar málin vandlega þegar taka á mikilvægar ákvarðanir
og hefur í gegnum tíðina jafnvel tekið ákvarðanir sem ganga
þvert á stefnu flokksins. Þess vegna treystir hinn almenni
Þjóðverji henni, þar sem hún fylgir ekki alltaf flokkslínunni
ef mikil vægir þjóðarhagsmunir eru í húfi. Ýmsir gætu haldið
því fram að Merkel skorti sterka útgeislun eða sjarma, en
alþýð leikinn verður ekki tekinn af henni. Þegar Merkel tók
við stöðu kanslara afþakkaði hún hið hefðbundna kanslara-
aðsetur og kaus heldur að búa í venjulegri íbúð á besta stað
í Berlín. Þar býr hún enn þann dag í dag ásamt eiginmanni
sínum, sem kýs að forðast sviðsljósið. Þó að sjaldnast sjáist
til eiginmannsins má endrum og eins rekast á Merkel í
matvöru búðum, en hún kýs að sjá um sín eigin innkaup.
Þessa nálægð við hinn almenna Þjóðverja kunna landsmenn
vel að meta. Merkel er að sjálfsögðu ekki laus við gagnrýni,
en stefnuleysi hefur þar helst verið nefnt, sem og skortur
„Stjórnunarstíll
Merkel vekur
traust hjá Þjóð-
verjum, en hún
virkar ávallt ró-
leg og yfir veguð.
Hún íhugar málin
vandlega þegar
taka á mikil-
vægar ákvarðanir
og hefur í
gegnum tíðina
jafnvel tekið
ákvarðanir sem
ganga þvert á
stefnu flokksins.“