Kjarninn - 26.12.2013, Side 104
Deildu með
umheiminum
pistill
væntingar til
ársins 2014
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands skrifar
v
ænting þýðir eftirvænting, von eða þrá. Í ljósi
merkingar orðsins og í ljósi þess að ég hugsa
til komandi árs, ársins 2014, vona ég að Ís-
lendingar beri gæfu til að finna betri leiðir til
lausnar málefna er tengjast hælisleitendum.
Fjölmiðlar flytja okkur fréttir úr þessum málaflokki sem
vekja sorg í hjarta mínu. Það er óásættanlegt að þau sem flýja
ömurlegar aðstæður og öryggisleysi heimalands síns búi
við það sama hér á landi. Við erum hluti af löndum heims,
mannkyni jarðar. Á tímum tækni og mikilla samskipta fólks
um allan heim ættum við að vera meðvitaðri um það að
um leið og við búum við mannréttindi af ýmsum toga ber
okkur skylda til að eiga samtal um og taka þátt í umræðu og
aðgerðum varðandi flóttafólk. Því miður eru allt of margir
sem ekki geta búið í heimalandi sínu sökum aðstæðna
sem ekki teljast mannsæmandi og vegna ófriðar af ýmsu
tagi. Ófriðar sem á rætur að rekja til óréttlætis og skorts á
mannúð. Íslendingar hafa mikið að gefa í þeirri umræðu sem
þarf að eiga sér stað í heiminum um vandamál flóttafólks og
hælisleitenda. Við þurfum líka að endurskoða lög, reglur og
verklag varðandi málefni þeirra sem hingað leita í neyð sinni
sem hælisleitendur.
Það er smánarblettur í samfélaginu að þau sem skera sig
úr að einhverju leyti þurfi að sitja undir orðum sem særa
og niðurlægja eða athöfnum sem gera þeim lífið leitt. Hvað
á það að þýða að fólk fái að heyra athuga-
semdir um útlit sitt eða uppruna? Þvílík
frekja og dónaskapur. Við þurfum líka að
vera kurteisari og bera meiri virðingu fyrir
öðrum og skoðunum þeirra. Sá siður að gera
lítið úr skoðunum annarra er landlægur og
er hvorki til eftirbreytni né sóma fyrir við-
komandi eða samfélagið, því slík orðræða er
ekki til þess fallin að leysa mál eða bæta líf.
Ég vænti þess að réttlæti nái fram að
ganga varðandi önnur mál er liggja á sam-
félaginu. Ofbeldi er orðið daglegt brauð og
ekki þykir tiltökumál að beita því. Það er
óásættanlegt að öryggi okkar sé ógnað og
fólk geti ekki gengið um götur og hús óáreitt. Ég vænti þess
einnig að við sem kristin erum fáum frið til að iðka trú okkar
og ótti stjórni ekki umræðu um trúarbrögð og áhrif þeirra í
samfélaginu. Ef við hættum ekki óttaumræðunni um trúna
þá veikjum við þann grunn sem við stöndum á og byggjum
líf okkar á sandi sem auðveldlega getur runnið til og eyðilagt
uppbyggingu og þann siðferðisgrunn sem við stöndum á.
Á árinu 2014 eru liðin 400 ár frá fæðingu prestsins og
skáldsins Hallgríms Péturssonar, sem orti meðal annars
heilræða vísur, sem enn standa fyrir sínu. Síðasta vísan er
þannig:
Víst ávallt þeim vana halt:
Vinna, lesa, iðja;
umfram allt þó ætíð skalt
elska Guð og biðja.
Að elska Guð og biðja er sá trausti grunnur sem ég vil
standa á sem einstaklingur og sem kirkja. Samfélag sem
tekur Guð með í reikninginn er ríkt samfélag. Ríkidæmið
felst í því að treysta á Guðs miskunn og nærveru hvenær sem
er og hvar sem er.
Væntingar til ársins 2014 eru bundnar þeirri trú
minni að:
Í hendi Guðs er hver ein tíð,
í hendi Guðs er allt vort stríð,
hið minnsta happ, hið mesta fár,
hið mikla djúp, hið litla tár.
„Ég vænti þess
einnig að við sem
kristin erum fáum
frið til að iðka
trú okkar og ótti
stjórni ekki um-
ræðu um trúarbrögð
og áhrif þeirra í
samfélaginu.“
um HöFundinn
Agnes M.
Sigurðardóttir
er biskup Íslands
01/01 kjarninn PiStiLL