Kjarninn - 29.05.2014, Page 24
10/12 Viðtal
hjartað þitt í vinnuna. Ef hann hefur á tilfinningunni að þú
munir ekki gera það ert þú ekki réttur maður í hlutverkið. Og
það voru alveg stór nöfn, sem komu til greina í hlutverk, sem
duttu út í upphafi einmitt vegna þessa.“
Eins og áður segir hafa viðbrögð gagnrýnenda og
áhorfenda við Vonarstræti verið ævintýri líkust. Á forsýningu
myndarinnar hófust mikil fagnaðarlæti í lok myndarinnar
sem vörðu allan tímann á meðan að textinn leið niður hvíta
tjaldið.
„Þetta er ógeðslega góð æfing í æðruleysi. Auðvitað varð
maður geðveikt glaður og þakklátur, þó að það sé klisja að
segja það, en þetta opnar svo margar dyr fyrir manni. Þetta er
fyrsta handritið sem ég kem að og nú gæti svo farið að ég geti
lifað af því sem ég elska að gera. Maður dreymir um svona við-
brögð þegar maður er krakki. Þegar ég var ungur var ég rosa-
lega duglegur að semja lag eða gera plötu, sannfærður um að
hún væri svo ógeðslega fokking góð að ég var eiginlega búinn
að taka við Íslensku tónlistarverðlaununum í huganum, áður
en platan kom út. Maður var kannski svolítið hroka fullur, en
ég hætti því fyrir nokkrum árum. Þegar þessi hugsun skaut
upp kollinum í hausnum á mér við gerð myndarinnar ýtti ég
henni jafnóðum út, því ég vissi hvað hún getur verið skemm-
andi. Þú verður fyrst og fremst að einbeita þér að því að sinna
listaverkinu, en ekki rúnka þínu eigin egói.“
fleiri verkefni í farvatninu
Vonarstræti heitir Life in a Fishbowl á ensku, eftir samnefnu
lagi með Maus frá árinu 2003 af plötunni Musick. Framleið-
endur myndarinnar eru bjartsýnir á að myndin verði tekin
til sýninga á fjölmörgum kvikmyndahátíðum víða um heim á
þessu ári.
Hvað Baldvin Z. og Birgi varðar eru þeir langt komnir með
handrit að næstu mynd sem þeir ætla að gera saman. „Við
erum búnir að vinna í tvö ár að næstu mynd, en hún kemur til
með að fjalla um sprautufíkla á táningsaldri. Við höfum unnið
mikla rannsóknarvinnu með Jóhannesi Kr. Kristjánssyni,
höfum farið inn á heimili sprautufíkla og tekið viðtöl við þá