Kjarninn - 29.05.2014, Síða 50
01/02 Kosningaspá.is kjarninn 29. maí 2014
reyKjaVíK Samfylkingin aldrei stærri þremur dögum fyrir kosningar
framsókn nær kjöri á
kostnað Sjálfstæðismanna
Könnun MMR, sem birt var í gær, hefur nokkuð afgerandi áhrif á
kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar, doktors í stærðfræði. Þó
fylgisbreytingarnar séu almennt ekki miklar (innan við eitt prósentustig),
tapar Sjálfstæðisflokkurinn einum fulltrúa til Framsóknar og flugvallavina.
Samkvæmt spánni er Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir oddviti B-listans
síðasti frambjóðandinn sem nær kjöri. Þetta er í fyrsta sinn sem listinn mælist
með nægjanlegt fylgi til að fá mann kjörinn.
Samfylkingin er enn stærsta framboðið í borginni og hefur aðeins
einu sinni áður mælst með meira fylgi síðan fyrsta kosningaspáin var birt.
Samfylkingin heldur fimm borgarfulltrúum og Björt framtíð er enn næst
stærsta framboðið, með fjóra kjörna fulltrúa. Þess ber þó að geta að munurinn
á fylgi Sjálfstæðisflokks og Bjartar framtíðar er langt innan vikmarka.
Fulltrúi Framsóknar og flugvallavina er valtur í fimmtánda sætinu því
næsti fulltrúi inn er Áslaug Friðriksdóttir frá D-lista og þar á eftir sjötti fulltrúi
á lista Samfylkingarinnar. bþh
aðferðin
Forsendur spárinnar
Kosningaspa.is sameinar
niðurstöður skoðanakannana
við útreikning á fylgi flokka.
Hverri könnun er gefið vægi
sem ákvarðast af þremur
þáttum: Hvar og hvenær
könnunin er framkvæmd og
hversu margir taka þátt. Því
er spáin vegið meðaltal af
könnunum. Nánar
fylgi framboða til borgarstjórnar í reykjavík
Samkvæmt nýjustu kosnginaspá gerð 28. maí 2014 og síðustu fimm spár til samanburðar
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
A BDS TVÞ
SpÁr í röð frÁ ViNStri
28. maí, 26. maí, 23. maí, 20. maí, 9. maí og 1. maí
2,
1%
0,
6%
7,
5%
5,
5%
31
,9
%
22
,2
%
21
,9
%
8,
3%