Kjarninn - 29.05.2014, Side 53
01/01 Sjö SPUrninGar
Þolir ekki bilaðar græjur
Hvað gleður þig mest þessa
dagana?
Blóm, knús og bros frá börnunum
mínum.
Hvert er þitt helsta áhugamál?
Úff! Hélt að þetta væri auðvelda
spurningin! Eitthvað sem gleður
augað. Hvort sem það er list,
augnablik, minning, eða spil milli
ljóss og skugga. Ég er alltaf að
rannsaka eitthvað svoleiðis, og hef
áhuga á því sem er fallegt á sinn
hátt?
Hvaða bók last þú síðast?
Ég les allt of lítið. Ég las Andrés-
blað síðast fyrir börnin mín.
Ég glugga stundum fyrir sjálfa mig
í bókina Gæfuspor, „Gildin í lífinu“
eftir Gunnar Hersvein. Ætla mér að
lesa Alkemistann á næstu dögum.
Annars les ég bara í ljósmyndir.
Ef þú mættir fara til útlanda á
morgun og mættir velja hvaða
land sem er, hvert myndir þú
fara?
Ég myndi fara til Parísar á morgun,
liggur bara þannig á mér í dag.
Til hvaða ráðherra berðu mest
traust?
Úff! Ég á erfitt með að treysta
þessari stétt. Held að allt of margir
segi bara það sem þeir halda að við
viljum heyra. Eða segja það sem
þeim er sagt að segja. Ég hef þó
hitt nokkra, sem eru einlægt og
gott fólk, svo að hér hentar engan
veginn fyrir mig að vera með ein-
hverjar alhæfingar.
Hvert er þitt uppáhaldslag?
Heyr Himnasmiður eftir Þorkel
Sigurbjörnsson.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Óréttlæti án efa!! Svo fer líka í
mínar fínustu, þegar nútímagræjur
eins og tölvur, símar, myndavélar
og þess háttar virka ekki sem
skyldi og bila og ég kann ekki að
laga það! Er ekki hægt að finna
eitthvað App við því?!
Sjö SPUrninGar
aldís Pálsdóttir
Ljósmyndari
01/01 sjö sPURNINGAR kjarninn 29. maí 2014