Kjarninn - 29.05.2014, Síða 74
04/04 álit
fólk, skreppum í sund, göngum, hjólum, hlaupum eftir stígum
borgarinnar, leitum til læknis, mætum í brúðkaup og jarðar-
för. Borgin umlykur okkur frá vöggu til grafar. Borgin er líf
okkar. Líf okkar er borgin. Við erum borgin.
Nákvæmlega þess vegna snýst ein mikilvægasta lífskjara-
barátta okkar tíma um borgarumhverfið: að borgarumhverfið
sé eins heilsusamlegt og kostur er, öruggt, skjólsælt, aðlað-
andi, fjölbreytt, skemmtilegt, fallegt og endurnærandi. Já,
einmitt endurnærandi! Við höfum nefnilega sagt skilið við þá
gömlu hugmynd, sem var lengi ríkjandi, að borgin sé vélrænn
staður þar sem við dveljum, eiginlega nauðug viljug, til að
sækja vinna og skóla á virkum vinnudögum en flýtum okkur
síðan burt úr bænum um helgar, því þar úti í sveit í sumar-
bústaðnum séu lífsgæðin. Þar sé lífið í sinni ánægjulegustu
mynd en ekki í bænum.
Fagnaðarboðskapur aðalskipulagstillögunnar fyrir Reykja-
vík 2010 til 2030 er þessi: Borgin býr yfir miklum umhverfis-
gæðum og lífsgæðum. Við Reykvíkingar þurfum ekkki endilega
að fara í sumarbústaðinn í Grímsnesinu til að njóta lífsins. Við
getum ekkert síður notið þess í borginni. Göturnar í borginni
eru þannig að það er gaman að rölta um þær, torgin eru
skjólsæl og sólrík, þegar sólin skín á annað borð, almennings-
garðarnir eru fallegir, göngu- og hjólastígarnir sem liggja
meðfram magnaðri strandlínu, inn græna og friðsæla dali og
út í ævintýralandslagið með hraunum og skógum austur af
borginni.
Þessi rauði þráður, fléttaður saman úr kröfunum um meiri
hagkvæmni í skipulagi og rekstri og meiri lífsgæði í borgar-
umhverfinu eins og ég hef lýst, er ekki alíslenskur spuni og
þaðan af síður heilaspuni eða pólitískur spuni. Þessi þráður
er rauður þráður í öllum borgum austan hafs og vestan þar
sem er einhver metnaður í gangi. Hann má sjá mjög skýrt
hjá jafn ólíkum stofnunum og borgarstjórn Reykjavíkur, APA
samtökum bandarískra skipulagsfræðinga og ótal ráðgjafar-
og lífsskoðunarfyrirtækjum sem eru sífellt að kynna lista yfir
lífvænlegustu borgir í heimi og rökstyðja hvað liggur að baki
valinu hverju sinni.