Kjarninn - 29.05.2014, Page 106
02/03 Kjaftæði
Hvar fá þessi framboð peningana til þess að auglýsa svona?
Varla er John Frieda eða Shockwave Wella að dæla þessu í
Dag.
Konan mín er á framboðslista Bjartar framtíðar. Til
saman burðar get ég sagt frá því að kosningabarátta BF
kostar eitthvað aðeins undir 3,5 milljónum. Allur peningur-
inn var tekinn á yfirdrætti í banka og er Sigurður Björn
Blöndal, oddviti flokksins, í persónulegri ábyrgð. Pening-
ana stendur svo til að endurgreiða með aurunum sem
Reykjavíkur borg fær þeim flokkum sem komast í borgar-
stjórn (30 kleinur sem allir deila).
Á sama tíma held ég að Dögun sé að keyra sína kosninga-
baráttu á góðum dósasjóði og að Alþýðu-
fylkingin hafi verið með einn brakandi fimm
þúsundkall til að klára dæmið. Miðað við
sýnileika þeirra í kosningabaráttunni má
ætla að þessi seðill hafi annaðhvort týnst eða
endað í spilakassa. Píratar aftur á móti nota
gjaldmiðil sem við hin líklegast þekkjum
ekki og eru hluti af hagkerfi sem enginn
skilur. Guð blessi þetta gengi og hálsakots-skeggin þeirra.
Það er enginn að segja mér að sömu heimili og sóttu um
skuldaleiðréttingu séu að ausa peningum í þessa flokka.
Bæði Halldór Halldórsson og Dagur B. Eggertsson vita að
hádegismatur er aldrei ókeypis, og kosningaframlög eru
það enn síður. Kjósendur eiga rétt á því að vita hvaða fyrir-
tæki, hagsmunaaðilar og einkafélög hafa verið að dæla í þá
peningum. Kjósendur eiga rétt á því að vita hverja er búið að
blikka, hverjir hafa setið með í hádegismat og hverjir telja sig
eiga tilkall til ákveðinni hlunninda þegar kosningum lýkur.
júlíus Vífill með 2,5 milljónir
í Reykjavík Vikublaði kemur fram að bara Júlíus Vífill hafi
fengið 2,5 milljónir frá ýmsum fyrirtækjum fyrir prófkjör sitt.
Aðallega verktökum. Haldiði að Júlíus fái þessa peninga því
hann syngur svo fallega? Eða tengist það frekar setu hans í
skipulagsráði?
„Á sama tíma
held ég að Dögun
sé að keyra sína
kosningabaráttu á
góðum dósasjóði.“