Kjarninn - 05.06.2014, Síða 6

Kjarninn - 05.06.2014, Síða 6
05/06 Leiðari á öðrum vettvangi en í fjármálageiranum. Dæmi um þetta er fyrirtækið Meniga, sem beinlínis fæddist í þessum aðstæðum. Auk þess hafa fleiri fyrirtæki í örum vexti á undanförnum árum, eins og TM Software og CCP, notið góðs af þessu þar sem hæft fólk hefur gengið til liðs við þessi fyrirtæki. Þorsteinn Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla, hefur tjáð sig um það sama; hér á Íslandi séu að mörgu leyti kjör aðstæður til þess að byggja upp fyrirtæki sem hyggist hasla sér völl erlendis. Ekki síst vegna þess hvað mann auðurinn er mikill. Ég fylgdist með ráðstefnunni Startup Iceland sem fram fór í Hörpu um síðastliðna helgi, en þar lýstu virtir erlendir fyrirlesarar, þar á meðal Bre Pettis, forstjóri þrívíddarteikni- fyrirtækisins MakerBot, Íslandi sem suðupotti fyrir frum- kvöðla og nýsköpun. Þeir fyndu fyrir því að þessar aðstæður væru fyrir hendi hér, ekki síst vegna mannauðs og vaxandi skilnings atvinnulífsins á mikilvægi frum- kvöðlastarfsemi. Nokkur atriði hafa skipt miklu máli í þessu samhengi eftir hrunið. Endurreistu bankarnir hafa sýnt þessum anga meiri áhuga en fyrir hrun. Ekki síst hefur Startup Reykjavík viðskiptahraðallinn, sem Arion banki og Klak Innovit hafa leitt, dregið frumkvöðlastarfið fram í skýrara dagsljós og gefið fólki tækifæri til að koma hugmyndum sínum á næsta stig. Á þeim þremur árum sem viðskipta- hraðallinn hefur staðið yfir hafa 30 fyrirtæki á frumþroska- stigi orðið til, og tugir starfa á ársgrundvelli í kjölfarið. Sum þessara fyrirtækja standa á spennandi tímamótum og eru að sækja sér fé á erlenda markaði. Íslandsbanki og Landsbank- inn hafa enn fremur verið að styrkja fjárfestingaumhverfi á sínum vettvangi, sett upp sjóði sem fjárfesta í nýsköpun á ýmsum sviðum og horfa til langs tíma. Þá stigu Samtök atvinnulífsins mikilvægt skref og stofnuðu sérstakan vett- vang, Litla Ísland, sem vinnur að framgangi lítilla og meðal- stórra fyrirtækja. Rannsóknir sýna að 70 til 80 prósent fólks á vinnumarkaði vinna hjá þessum fyrir tækjum. Athyglin í fjölmiðlum og umræðu um hagsmunamál atvinnulífsins yfirleitt er ekki í samræmi við þetta. „Jákvæðar hliðar hrunsins hafa ekki verið mikið ræddar.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.