Kjarninn - 05.06.2014, Blaðsíða 14
11/13 UmhverFismáL
ekki vitað hvort þetta virkar
Niðurdælingarverkefnið er þróunar- og nýsköpunarverkefni
sem miðar að því að draga úr mengun frá Hellisheiðarvirkjun.
Í því felst að skilja á brennisteinsvetnið frá gufu og blanda
við vinnsluvatn frá virkjuninni áður en því er dælt niður í
berggrunn við virkjunina. Samkvæmt Orkuveitunni gefa
niðurstöður tilrauna til kynna að það bindist þar berglögum.
Rannsóknir vegna þessa verkefnis hafa staðið yfir frá árinu
2007 og Orkuveita Reykjavíkur hefur sagst hafa verið að vinna
að verkefninu á fullu alla tíð síðan.
Í byrjun apríl síðastliðins sendi fyrirtækið svo frá sér
fréttatilkynningu þar sem sagt var frá því að niðurdæling
brennisteinsvetnis væri að fara að hefjast. Um verður að
ræða tilrauna rekstur hreinsistöðvar sem mun skilja brenni-
steinsvetni úr gufuútblæstri einnar af sex vélum Hellisheiðar-
virkjunar. Í tilkynningunni segir: „gangi rekstur stöðvarinnar
eins og vænst er, verður hún stækkuð. Slík ákvörðun verður
ekki tekin fyrr en að fenginni eins árs rekstrarreynslu.
Þess vegna hefur Orkuveitan farið fram á undanþágu á
hertum ákvæðum reglugerðar um styrk brennisteinsvetnis
í andrúmslofti, sem ganga eiga í gildi í sumar.“ Samkvæmt
skriflegu svari frá Eiríki Hjálmarssyni, upplýsingafulltrúa
Orku veitunnar, tók lengri tíma en til stóð að byrja að blanda
brennisteinsvetninu saman við niðurdælingarvatnið. Fyrsta
prófun var því ekki fyrr en 15. maí og stöðug niðurdæling hófst
ekki fyrr en í fyrradag, 3. júní. Ástæðan var sú að stilla þurfti
betur saman búnað hreinsistöðvar og virkjunar, en Eiríkur
segir niðurdælinguna hafa gengið vel fyrsta sólarhringinn
sem hún var stöðug.
Ástæðan fyrir undanþágubeiðninni er augljós, Hellisheiðar-
virkjun stenst ekki nýju mörkin. Beiðnin liggur inni á borði
Sigurðar Inga Jóhannssonar umhverfisráðherra. Samkvæmt
upplýsingum frá Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur, upplýsinga-
fulltrúa ráðuneytisins, hefur hann enn ekki tekið ákvörðun um
hvort undanþágan verði veitt. Það þarf þó að gerast bráðlega
því hin hertu ákvæði taka gildi um næstu mánaðamót.
Einsog alltaf er með tilraunaverkefni liggur auðvitað
ekkert fyrir um hver niðurstaðan verður.
„Ástæðan fyrir
undanþágu-
beiðninni
er augljós,
Hellisheiðar-
virkjun stenst
ekki nýju
mörkin.“