Kjarninn - 05.06.2014, Page 38
30/34 DaNmörk
á
unglingsárunum var fátt sem benti til að Lennart
Lajboschitz, sem er af gyðinga ættum, yrði síðar
það sem kalla má viðskipta jöfur og í hópi ríkustu
manna Danmerkur. Hann ólst upp á Amager í
Kaupmannahöfn við tak mörkuð efni, faðirinn
rak litla heildsölu, móðirin heimavinnandi. Lennart rétt slefaði
í gegnum grunnskólapróf og eftir að hafa farið krókaleiðir
gegnum framhalds skólann var lokaeinkunnin svo lág að leiðir
til frekara framhaldsnáms voru nær allar lokaðar. Það var því
brauðstritið sem við blasti og Lennart vann næstu árin við
hreingerningar, sem aðstoðarmaður í skóla, á frístundaheimili
og margt margt fleira. Allt fremur illa launuð störf og ekki til
framtíðar. En eitt kunni Lennart; hann var lunkinn borðtennis-
spilari og þótti laginn þjálfari. En launin voru lág. Hinn 1. maí
1985 var Lennart í Fælledparken í Kaupmannahöfn og safnaði
flöskum (þetta var fyrir daga dósanna), ásamt félaga sínum.
Ágóðann ætlaðu þeir að nota til að komast á borðtennismót í
Hollandi. Þarna í Fælledparken hitti Lennart ungan kennara-
nema, Suzanne. Þau fundu strax að hjörtu þeirra slógu í takt,
og takturinn sá hefur haldist allar götur síðan.
gallaðar regnhlífar lögðu grunninn
Suzanne komst að því að tengdafaðirinn, heildsalinn, sat
uppi með mörg hundruð gallaðar regnhlífar, sem hann tímdi
þó ekki að henda. Unga parið fékk regn hlífarnar, gerði við
þær og seldi á útimarkaði um hverja helgi allt sumarið og
líka á Hróarskelduhátíðinni. „Rífandi
bisness,“ sagði Lennart síðar. Ágóðinn af
regnhlífasölunni var svo notaður í langt
ferðalag til Kína. Þegar þau komu aftur
heim fóru þau sjálf að flytja inn regnhlífar
og sól gleraugu og seldu á mörkuðum víða
um land. Þessu héldu þau áfram um skeið.
Svo kom að því að þeim þótti nóg komið af
flökkulífinu, voru komin með tvö börn og
ákváðu að opna verslun á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn, þar
sem þau bjuggu. Þetta var árið 1988.
DaNmörk
Borgþór Arngrímsson
„Unga parið fékk regn-
hlífarnar, gerði við þær og
seldi á úti markaði um hverja
helgi allt sumarið og líka á
Hróarskelduhátíðinni.“