Kjarninn - 05.06.2014, Page 71
02/08 tÓNList
í fyrsta skiptið á suðurströnd Englands árið 2000. Hátíðin
hefur verið haldin á nokkrum stöðum, þ.m.t. á tveimur
stöðum í Englandi, á vestur- og austurströnd Bandaríkjanna
og í Ástralíu.
All Tomorrow‘s Parties hefur verið líkt við hina full-
komnu blandspólu af fyrrverandi forsprakka Sonic Youth,
Thurston Moore. Hátíðin var stofnuð af tónleikahaldaranum
og ástríðufulla tónlistarnirðinum Barry Hogan árið 1999.
Upphaflegt markmið hátíðarinnar var að bjóða fólki sem
fílaði tónlist á jaðrinum valkost við aðrar og stærri hátíðir
sem þá voru í boði í Evrópu. Hátíðin átti aldrei að verða stór,
á henni átti að spila tónlistarfólk sem er með mikla ástríðu
fyrir tónlist annarra og áttu gestir hátíðarinnar ávallt að geta
verið í námunda við tónlistarfólkið sem á hátíðinni spilar.
Öllum þessum einkennum hefur tekist að viðhalda í þau ár
sem hátíðin hefur verið haldin.
Tónleikadagskráin á All Tomorrow‘s Parties á Íslandi
verður með allra glæsilegasta móti í ár og verður hátíðin
haldin dagana 10.-12. júlí á Ásbrú eins og getið er hér að ofan.
Sérstök upphitun fyrir hátíðina er ekki af verri endanum þar
sem einn áhrifamesti tónlistarmaður 20. aldarinnar, Neil
Young, mun troða upp í Laugardalshöll ásamt hljómsveit
sinni Crazy Horse mánudaginn 7. júlí.
Á sjálfri hátíðinni hafa verið staðfest þrjátíu og eitt
tónlistaratriði. Af þeim eru átján erlend og hafa sum þeirra
spilað áður á Íslandi en flest þeirra ekki. Fyrir stuttu var
tilkynnt um viðbætur á tónlistaratriðum og er óhætt að segja
að samskiptamiðlar hafi umturnast af gleði þann dag. Hér að
neðan er stiklað léttilega yfir þá erlendu flytjendur sem koma
fram í ár.
smelltu til að hlýða á laga-
lista með lögum erlendu
flytjendanna
„Fyrir stuttu
var tilkynnt
um viðbætur á
tónlistar atriðum
og er óhætt að
segja að sam-
skiptamiðlar hafi
umturnast af
gleði þann dag. “