Innsýn - 01.03.1987, Side 13
Djöfullegur máttur
í tónlist
Því miður ganga áhrifin
á hugann dýpra en að
siðferði og stjórnmálum.
Bob Larsen greinir frá
persónulegri reynslu sinni
á því hvernig er að finna
djöfullegan mátt gegnum
tónlist:
"Ég gerði mér ljóst
samhengið milli illra anda
og dans jafnvel áður en ég
snerist til trúar. . . .
Maður lærir’ að stjórna
áheyrendunum með tón-
listinni sem leikin er. Ég
hef leikið sama lagið allt
uppí fimmtán til tuttugu
mínútur samfleytt. Stundum
þegar ég var að leika
rokkmúsik varð ég svo
bergnuminn og skilningar-
vit mín svo slævð að ég
vissi naumast hvað fór
fram í kringum mig. Sem
prestur veit ég nú hvað
það er að reyna smurningu
Heilags anda. Sem rokk-
tónlistarmaður vissi ég
hvað það var að reyna hina
fölsku smurningu Sat-
ans. ',if7
Síðan segir hann frá
óvenjulegri reynslu sextán
ára hippa eftir frásögn
vinar síns sem vinnur
meðal hippa: "Dag einn bað
hann vin minn að stilla
útvarpið á rokkstöð. Meðan
þeir hlustuðu, hafði
unglingurinn yfir texta
lagsins, áður en söng-
varinn í útvarpinu byrjaði
að syngja, þó að hann
hefði aldrei heyrt hann
áður. Þegar hann var
spurður hvernig hann færi
að þessu, svaraði ungl-
ingurinn að djöflaandarnir
sem hann hefði kynnst
hefðu blásið sér orðunum í
brjóst. Hann sagði líka að
þegar hann væri á LSD
gæti hann heyrt
djöflana syngja nákvæmlega
þau lög sem hann heyrði
síðar tekin upp af
rokkgrúppum undir sýru-
áhrifum.
Hinn trúarlegi taktur
Til viðbótar hinum
beinni áhrifum á hugann
sem rædd hafa verið, eru
önnur sem vegna hins afar
lævíslega dulargervis síns
gætu reynst jafnvel enn
háskalegri en nokkur
önnur. Við höfum séð að
mannleg viðbrögð við
tónlist eru eðlislæg og
boðskapur hennar, einkum á
sviði alþýðutónlistar, er
almennt skilinn. Hvernig
bregst maður við sem hefur
orðið fyrir áhrifum af
jassi (þ.á.m. hinum vægari
formum, svo sem swing),
soul-músik eða rokki í
sínu eðlilega umhverfi,
þegar hann heyrir sama
grundvallartaktinn og
stílinn í trúarlegu
umhverfi og búinn trúar-
legum textum? (við skulum
gera ráð fyrir að text-
arnir séu í samræmi við
Biblíuna). Hvernig bregst
hugurinn við þessari
blöndu góðs og ills?
Ellen White segir okkur
að einmitt þessari tækni
hafi verið beitt við fall
mannsins. "Með því að
blanda illu saman við gott
truflaðist hugur hans.'|Zf^
Meðtaka þessarar blöndu
ills og góðs eða stöðugt
starf nálægt markalínunni
er málamiðlun, og hvergi
kemur það skýrar fram en á
sviði trúarlegrar tón-
listar. Fjölmiðlarnir hafa
svo fullkomlega alið
fjöldann á smitandi
danstakti að allt annað
virðist flatneskjulegt og
bragðdauft. Af þessu hefur
leitt nokkuð sem ber keim
af þráhyggju meðal margra
sálma- og tónskálda og
hljóðfæraleikara í röðum
sjöunda dags aðventista er
búa sálmalög sín einskonar
danstakti.
Þó að sumir hópar séu
gætnari eða "íhaldssamari"
hefur tónlist flestra að
geyma illa dulbúin
millistig úr dansstíl, svo
sem vals, foxtrot, kántrí,
mjúkt rokk og alþýðurokk.
Sumir reyna að fela eða
aðhæfa stíl sinn undir
yfirskini "alþýðustíls".
Augljóst er að þessir
Innsýn l.tbl. 1987
13