Húsbyggingar og mannvirkjagerð 1945-1986 - 01.04.1988, Page 18

Húsbyggingar og mannvirkjagerð 1945-1986 - 01.04.1988, Page 18
16 byggingarkostnaðar eftir byggingarstigum, sem þar kemur fram. Framangreindum hlutföllum hefur örlítið verið hnikað til síðustu árin. Þannig er byggingarstigið "ófullgert en í notkun" nú talið 75% af fullgerðu en var lengst af talið 70%. Gert er ráð fyrir því að þessi liður hækki á upp í 82% af fullgerðu. Þessi breyting er rökstudd með því að löngum var sá háttur hafður á að fólk flutti í íbúðir sínar löngu áður en þær voru fullgerðar, hvort heldur þegar fólk annaðist byggingu húsanna sjálft eða keypti íbúðir sínar "tilbúnar undir tréverk". Á þessu hefir orðið veruleg breyting í seinni tíð. Að þessu loknu er næsta skref að umreikna framkvæmdir ársins til verðs þannig að mat fáist á fjármunamynduninni ár hvert. En um þann þátt verður fjallað í næstu grein hér á eftir. 2.2.2 Verðlagning bygginga. Þegar tölur um framkvæmdir í rúmmetrum liggja fyrir er næst að umreikna þær til verðs til þess að fá mat á fjármunamynduninni í fjárhæðum. Allt frá upphafi þessarar skýrslugerðar hefur þeirri aðferð verið fylgt að leggja vísitölu byggingarkostnaðar til grundvallar. Það hefur lengst af verið gert með þeim hætti, að byggingarkostnaður vísitöluhúss, sem notaður var til útreiknings á vísitölu byggingarkostnaðar í Reykjavík, hefur verið notaður til viðmiðunar, en aðrar íbúðarhúsabyggingar hafa verið metnar til ákveðins hundraðshluta af þeim kostnaði. Sá hundraðshluti, sem notaður hefur verið á hinum ýmsu tímum, hefur verið dálítið breytilegur, en nú síðustu árin hefur þeirri reglu verið fylgt að fábýlishús á höfuðborgarsvæðinu hafa verið metin 25% dýrari á hvern rúmmetra en fjölbýlishús. Vísitala einbýlishúsa sýnir hins vegar enn meiri mun eða 35-40%. Rúmmetraverð alls íbúðarhúsnæðis í kaupstöðum utan Reykjavíkur er talið vera það sama og á fjölbýlishúsum í Reykjavík. Aftur á móti er rúmmetraverðið í kauptúnum og sveitum talið 90% af því verði. Við verðlagningu atvinnuhúsnæðis er gjarna fylgt vísitölu byggingarkostnaðar. Hinar ýmsu tegundir atvinnubygginga hafa verið metnar til ákveðins hundraðshluta af rúmmetraverði vísitöluhússins. Auk þess hefur verið tekið mið af byggingarkostnaði iðnaðarhúss, sem reiknaður hefur verið út allt frá árinu 1978. Þá er einnig byggt á upplýsingum beint frá framkvæmdaaðilum. Svo er t.a.m. um virkjanaframkvæmdir og byggingarframkvæmdir hins opinbera að verulegu leyti. Sama á við um ýmsar stórframkvæmdir hverju sinni. Þar er leitast við að fá beinar kostnaðartölur frá framkvæmdaaðilum fremur en að styðjast við vísitölu byggingarkostnaðar. Vissulega má efast um ágæti þess að nota vísitölu byggingarkostnaðar í eins ríkum mæli og gert hefur verið við verðlagningu bygginga. Þótt vísitalan sé vafalítið ágætur mælikvarði til síns venjulega brúks, þ.e. að meta verðbreytingar frá einum tíma til annars, er engan veginn gefið að byggingarkostnaður á rúmmetra sé að jafnaði sá sami og vísitalan gefur til kynna. Hér getur margt i
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Húsbyggingar og mannvirkjagerð 1945-1986

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsbyggingar og mannvirkjagerð 1945-1986
https://timarit.is/publication/1000

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.