Búskapur hins opinbera 1993-1994 - 01.03.1995, Blaðsíða 5
Formáli.
Rit þetta ijallar um búskap hins opinbera. Með búskap hins opinbera er átt við
starfsemi ríkis, sveitarfélaga og almannatryggingakerfis. Hér er þó undanskilin
starfsemi fyrirtækja og sjóða í opinberri eigu enda er slíkri starfsemi að jafnaði
ætlað að standa undir sér með sölu á vöru eða þjónustu á almennum markaði.
í ritinu er meðal annars að finna yfirlit um tekjur, útgjöld og afkomu hins
opinbera. Birt eru sundurliðuð yfirlit og tölur dregnar saman fyrir hið opinbera í
heild. Jafnframt er íjallað um umfang hins opinbera í þjóðarbúskapnum og í því
skyni stuðst við mismunandi mælikvarða. Þá er gerð grein fyrir skuldum og
lánastarfsemi hins opinbera. Einnig er gerður samanburður á afkomu og umsvifum
hins opinbera á Islandi og í öðrum aðildarríkjum OECD. Loks er gerð grein fyrir
nýrri úrvinnslu sem sýnir sundurliðun á heildarútgjöldum hins opinbera eftir
viðfangsefnum fyrir tímabilið 1945-1980. Áður hafði sambærileg flokkun ekki
verið til lengra aftur en til ársins 1980.
Rétt er að vekja athygli á því að í þessu riti er fylgt þeirri breyttu skilgreiningu á
umfangi hins opinbera sem kynnt var í Búskap hins opinbera 1992-1993, sem út
kom í apríl 1994. Eldra uppgjör um fjármál hins opinbera hefur því verið leiðrétt til
samræmis við þessa nýju skilgreiningu. Hér er um að ræða ýmsar viðbætur við
tekjur og útgjöld hins opinbera, sem teljast að réttu með samkvæmt þjóðhags-
reikningakerfi Sameinuðu þjóðanna.
Uppistaða ritsins er talnaefni fyrir árin 1990-1993, en þó er einnig í því að finna
bráðabirgðatölur fyrir árið 1994 byggðar meðal annars á greiðsluuppgjöri ríkis-
sjóðs og tekju- og afkomuhorfum sveitarfélaga. Sömuleiðis er að finna talnaefni
sem nær allt aftur til ársins 1980. Gerð er grein fyrir þessu talnaefni í fyrsta hluta
ritsins og þar er lögð áhersla á búskap hins opinbera í heild.
Áður hafa komið út fimm rit um sama efni; árið 1983, 1986, 1991, 1993 og
1994. Ritið sem gefið var út 1994 spannaði tímabilið 1990-1992. Nú bætist við eitt
ár, 1993. Stefnt er að því að gefa út svona rit árlega í framtíðinni með áherslu á
næstliðin tvö ár, með endanlegu uppgjöri fyrir fyrra árið og bráðabirgðatölum fyrir
það síðara.
Á vegum Þjóðhagsstofnunar hefur Jóhann Rúnar Björgvinsson einkum unnið
að gerð þessa rits, tekið saman talnaefnið og samið skýringar.
Þjóðhagsstofnun
í mars 1995
Þórður Friðjónsson
3