Búskapur hins opinbera 1993-1994 - 01.03.1995, Blaðsíða 12
eftir árum. Þessi úrvinnsla er síðan notuð til viðmiðunar við áætlun fyrir aðra hreppa
og sýslufélög. Þá liggur íyrir uppgjör Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, en Jöfnunarsjóður er
hér færður sem hluti af búskap sveitarfélaganna.
Hin allra síðustu ár hefur úrvinnsla Þjóðhagsstofnunar tekið í ríkara mæli mið af
uppgjöri Hagstofu Islands á sveitarsjóðareikningum, sem nú kemur út með reglu-
bundnu millibili. Þá hefur stofnunin einnig stuðst við árbækur Sambands íslenskra
sveitarfélaga um fjármál sveitarfélag.
Yfírlitin um almannatryggingakerflð hafa verið unnin upp úr reikningum
Tryggingastofnunar ríkisins, þ.e. reikningum sjúkratrygginga, lífeyristrygginga, slysa-
trygginga og atvinnuleysistrygginga, en reikningar þessir hafa verið birtir í
Félagsmálum, tímariti Tryggingastofhunar ríkisins.
Frekari lýsingu á reikningagerðinni, umfram það sem fram kemur í þessu riti, er að
fmna í "Búskap hins opinbera 1980-1984", "Búskap hins opinbera 1980-1989" og
"Búskap hins opinbera 1980-1991 og 1992-1993" sem fjalla um sama efni.
2. Afkoma hins opinbera
Ymsir mælikvarðar eru notaðir til þess að mæla afkomu hins opinbera. Algengastir
þeirra eru rekstrarjöfnuður, tekjuafgangur/halli og hrein lánsfjárþörf Samhengi þeirra
má sýna með eftirfarandi yfirliti:
Tafla 2.1 Yfirlit um fjármál hins opinbera 1992-1994
Milljarðar króna 1992 1993 1994-U Hlutfall afVLF 1992 1993 1994
Tekjur 150,3 147,5 154,5 37,8 35,9 35,9
- Rekstrargjöld 138,4 143,5 147,4 34,8 34,9 34,2
Rekstrarjöfnuður (hreinn sparnaður) 11,9 4,1 7,1 3,0 1,0 2,6
- Fastafjárútgjöld 23,1 22,5 24,2 5,8 5,5 5,6
Tekjuafgangur/halli -11,2 -18,4 -17,1 -2,8 -4,5 -4,0
- Kröfu og hlutafjáraukning -1,4 -1,9 4,5 -0,4 -0,5 1,0
Hrein lánsfjárþörf 9,8 16,5 21,6 2,5 4,0 5,0
- Lántökur, nettó 18,0 17,8 21,6 4,5 4,3 5,0
Greiðslujöfnuður -8,2 -1,2 0,0 -2,1 -0,3 0,0
1) Bráðabirgðatölur.
Rekstrarjöfnuður eða hreinn spamaður mælir mismun rekstrartekna og rekstrar-
gjalda, og gefur til kynna hversu mikið hið opinbera hefur afgangs úr rekstri til
fastafjárútgjalda og kröfu- og hlutafjáraukningar. Árið 1993 varð hreinn spamaður
hins opinbera aðeins rúmlega 4 milljarðar króna eða 1% af landsframleiðslu. Spamað-
arhlutfallið hafði lækkað um 2 prósentustig frá árinu áður. En samkvæmt bráðabirgða-
tölum bentir flest til að það hækki aftur árið 1994 og mælist 2,6% af landsframleiðslu.
Tekjuafgangur/halli mælir mismun tekna og rekstrar- og fastaljárútgjalda. Þessi
jöfnuður gefur til kynna hvort hið opinbera leggur öðrum aðilum hagkerfísins til
flármagn nettó eða tekur til sín fjármagn. Bráðabirgðatölur benda til þess að
tekjuhallinn hafí numið um 17 milljörðum króna í fyrra, eða sem svarar til 4,0% af
landsframleiðslu. Til samanburðar nam tekjuhallinn 4V2% af landsframleiðslu árið
1993, en síðustu 10 árin hefur hann verið að meðaltali 3,1% af landsframleiðslu. Sú
10