Búskapur hins opinbera 1993-1994 - 01.03.1995, Blaðsíða 11
1. Inngangur
Rit þetta Qallar um búskap hins opinbera, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almanna-
tryggingakerfís. Ritið, sem er númer 14 í ritröð Þjóðhagsstofnunar um þjóðhags-
reikninga nær sérstaklega til áranna 1990-1993 og er framhald rits um sama efni, sem
kom út í apríl 1994.
I ritinu er "hið opinbera" í meginatriðum notað sem heiti á starfsemi sem tekna er
aflað til með álagningu skatta en ekki með sölu á vöru og þjónustu á almennum
markaði. Af þessu leiðir að starfsemi fyrirtækja og sjóða í eigu ríkis og sveitarfélaga
fellur utan við efni ritsins, nema að því marki sem þessir aðilar eiga viðskipti við hið
opinbera. Að því er ríkissjóð varðar fellur þessi skilgreining að mestu að A-hluta
ríkisreiknings og hvað sveitarfélög varðar að sveitarsjóðum.
í ritinu er fylgt þeirri breyttu skilgreiningu á umfangi hins opinbera sem kynnt var í
Búskap hins opinbera 1992-1993. Eldra uppgjör um fjármál hins opinbera hefur því
verið leiðrétt til samræmis við þessa nýju skilgreiningu. Hér er um að ræða ýmsar
viðbætur við tekjur og útgjöld hins opinbera, sem nú teljast að réttu með samkvæmt
þjóðhagsreikningakerfí Sameinuðu þjóðanna.
Reikningakerfl opinbera búskaparins, eins og það birtist í þessu riti, er hluti af
stærra reikningakerfi fyrir þjóðarbúskapinn í heild og er unnið samkvæmt reglum
Sameinuðu þjóðanna um gerð þjóðhagsreikninga. Birt eru sérstök yfirlit um ríki,
sveitarfélögin í heild og almannatryggingakerfið hvert um sig og síðan eru dregnar
saman tölur fyrir hið opinbera í heild. Þessi yfirlit eru þrískipt. I fyrsta lagi er tekju- og
útgjaldareikningur, sem sýnir tekjur og rekstrargjöld á hverju ári. I öðru lagi er yfirlit
um fastafjárútgjöld, en þar færast meðal annars fjármunamyndun og Qármagns-
tilfærslur ársins. Að lokum er svo fjárstreymisreikningar, sem sýna kröfu- og
hlutafjárbreytingu hins opinbera og lána- og sjóðshreyfingar þess á hverju ári.
Ritið skiptist í átta hluta, auk töfluhluta. Að loknum inngangi er í öðrum hluta vikið
að afkomustærðum hins opinbera, í þriðja hluta umsvifum þess og í fjórða hluta
tekjum þess. Þá er í fimmta hluta fjallað um útgjöld hins opinbera. I sjötta hluta er að
finna umfjöllun um skuldir og lánastarfsemi hins opinbera. I sjöunda hluta er gerður
stuttur alþjóðlegur samanburður. Að síðustu er í áttunda hluta Qallað um búskap hins
opinbera 1945-1980, en birt er ný úrvinnsla sem sýnir sundurliðun á heildarútgjöldum
hins opinbera eftir viðfangsefnum fyrir þetta tímabil. Aður hafði sambærileg flokkun
ekki verið til lengra aftur en til ársins 1980.
Töfluhluti ritsins skiptist í níu flokka. Fyrst eru yfirlitstöflur, en síðan sundurliðanir
á tekjum og gjöldum, s.s. á samneyslu, framleiðslustyrkjum, Qármunamyndun o.fl. I
áttunda töfluhlutanum er að finna yfirlitstöflur um tekjur og gjöld sem ná allt afitur til
ársins 1945.
Heimildir um búskap hins opinbera eru að mestu leyti unnar upp úr reikningum
ríkissjóðs, sveitarfélaga og Tryggingastofnunar ríkisins. Reikningar ríkissjóðs hafa
nær eingöngu verið unnir upp úr A-hluta ríkisreiknings, sem nær yfir skatttekjur og
ráðstöfun þeirra. I B-hluta eru hins vegar færð ríkisfyrirtæki, ýmsar lánastofnanir o.fl.
Úrvinnsla úr reikningum sveitarfélaganna hefur fyrst og fremst miðast við hina
eiginlegu bæjarsjóðareikninga, en þar eru færðar skatttekjur og ráðstöfun þeirra. Efni
fyrir hreppana hefur verið unnið upp úr reikningum helstu hreppa, nokkuð breytilegt
9