Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Blaðsíða 7
ur skref þegar hjörð æpandi götustráka kom á eftir lionum. En hann
varð þó að draga að sér björg, meðal Jimmy litli sonur hans var í skól-
anum. Hér hjálpaði þeim enginn. Aleinir, eins og tveir einsetumenn
höfðust þeir við í litlu, gömlu húsi utan við borgina.
Jimmy litli, sem var á skólalóðinni nokkur skref frá föður sínum,
beit nú og klóraði eins og villtur köttur, en því miður þýddi það
ekki neitt. Því meir sem hann barðist um og reyndi að verja sig, því
verr lét hópurinn, og öskur þeirra hljómuðu eins og sírenuöskur.
Frank Kelloki stóð fyrst andartak óviss, hvar hann ætti fyrst að grípa
til hendinni. En þá sá hann tvær konur koma fyrir götuhornið. Þær
stönsuðu og lyftu fallna manninum upp. Þegar Kelloki sá það, hugsaði
hann sig ekki tvisvar um. Hann studdi höndunum á girðinguna, stökk
yfir í einu stökk og var í næstu andrá kominn inn í hinn öskrandi
krakkahóp. Á svipstundu hafði hann losað Jimmy litla, og nú hrópaði
hann til kvalara hans, sem voru agndofa vegna skyndilegrar komu þessa
ókunna manns: „Hverskonar illmenni eruð þið yfirleittP Eruð þið
amerískir borgarar eða hreinir villimenn? Tuttugu á móti einum, að
þið skuluð ekki skammast ykkar!“
Sá óskammfeilnasti í hópnum virtist nú hafa náð sér aftur eftir
undrunina og sagði frekjulega: „Það er nú bara negri,“ eins og það
væri ekki nema sjálfsagt að fara svo með Jimmy, þar sem hann var
svertingi.
„Hann er langtum betri maður en þið,“ sagði Frank í skammartón,
„og ég skal flengja ykkur, þar til þið eruð mjúkir sem svampur, ef þið
ekki látið hann í friði! “
„Faðir hans er þjófur,“ hrópaði einn strákanna.
„Þið vitið vel, að það er ósatt,“ sagði Jimmy litli reiðilega, og tárin,
sem höfðu þornað við komu björgunarmanns hans, runnu nú að nýju
úr augum hans. „Það hefur meira að segja staðið í blöðunum, að sak-
leysi hans er algerlega sannað.
Strákarnir byrjuðu nú aftur að æpa, og hver veit, hvernig málalok
hefðu orðið, ef koma rektors hefði ekki bundið enda á deiluna.
„Hvað er hér á seiði?“ spurði hann þungt og það var ógnandi undir-
tónn í röddinni.
Frank Kelloki þurrkaði með vasaklút rykið af buxunum sínum, og
gaf rektor skýringu á því, hvers vegna hann væri þangað kominn.
Nýtt S O S
7