Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Blaðsíða 16

Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Blaðsíða 16
sem hann var í yfirliði og gat ekki einu sinni sagt, livar hann hefði nrestar þrautir, vissu þeir ekki hvað gera skyldi. Stórir blóðhlaupnir blettir neðan- til á hægri síðu virtust benda til blæðngar innvortis. En hvað átti hjúkr- unarmaður þá,að gera? Þegar særði maðurinn kom til sjálfs sín tók hann að hljóða af kvölum og var honum þá gefin morfínsprauta. Annars varð bara að bíða, hvort sem mönnum þótti það ljúft eða leitt. Alla nóttina þrumuðu fallbyssurnar á skipunum, og með fyrstu morg- unskímunni tóku flugvélarnar að leggja af stað frá flugvélaskipunum. Japanir skyldu finna, að blaðið hafði snúist við frá því í Pearl Harbor — og svo sannarlega — í þessari sjóorustu, úti fyrir Luzon, fundu þeir það líka. Hvað hafði að segja, innan allra þessara þúsunda, einn einstakur sjóliðs- foringi, sem veinaði af kvölum í koju sinni, er hann fékk meðvitund ann- að veifið? Hann fann að vísu umhyggju félaga sinna, sem alltaf litu til hans, ef þeir höfðu augnabliks hlé. En kvalir hann minkuðu samt ekki. Meira að segja skipherrann leit einu sinni inn til hans: „Getið þér þolað þetta enn litla stund?“ spurði hann. Munnlegt svar vð spurningu sinni fékk hann ekki, en hann hélt þó að hann hefði merkt sjúklinginn kinka kolli til svars. „Á morgun um hádegi tekur læknir yður til með- ferðar," héla Willbrook skipherra áfram, „þá getum við örugglega náð í lækni.“ Hafði sjúklingurinn skilið þetta? Ekkert varð greint á andliti hans, afskræmdu af sársauka. 16 Nýtt S O S

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.