Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Page 19
Fellibylurinn œddi yfir hafið.
nú, mundi vera barnaleikur hjá því, sem við munum upplifa eftir
nokkrar klukkustundir!"
„Þá get ég ekkert gert, skipstjóri, og ég verð að hugga yður með því,
að ég hef gert skyldu mína. Sem læknir get ég ekki ábyrgzt að flytja
fyrsta stýrimann yðar frá skipi nú!“
Willbrook skipherra hafði ekki spáð of rniklu, heldur of litlu. Eitur-
eldhús fjandans var mjög saklaust nafn á því, sem þeir virkilega áttu eftir
að upplifa.
Mennirnir á Halseys flotanum voru engir nýgræðingar á sjó. Þeir höfðu
þegar gengið í gegnum margar stormhrinurnar á skipum sínum. En það,
sem kom yfir flotann um kvöldið þann 17. desember, var meira, en jafnvel
hinn elzti sjógarpur hafði nokkru sinni upplifað. Læknirinn hafði áður
neitað að láta flytja fyrsta stýrimann frá borði vegna þess, hve sjógangurinn
var mikill, en segja mátti nú, að hafið slengdi öldufjöllum að skipinu.
Enn grunaði engan, hve slæmt raunverulega það átti eftir að verða.
Alstaðar um borð ríkti nú kappsamt annríki. Á þilförunum voru bundn-
Nýtt S O S
19