Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Qupperneq 20

Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Qupperneq 20
ar stafnlestar, og gengið var frá liverju kílói kjölfestu svo tryggilega sem unnt var. Allt, sem ekki var fast, var rígbundið. Nú liafði enginn skips- manna tíma, til að líta eftir hinum veika stýrimanni. Þó enginn segði neitt, vissu allir: Að nú var um meira en eitt lífa að tefla! Er nóttin var skollin yfir, sást ekkert. Aðeins blettirnir á radarskerm- inum sögðu skipherranum, að það voru fleiri en skipið hans, sem urðu að standast þetta helvíti. Nú var öllum ljóst, að þetta var aðeins byrjunin, að ógnirnar myndu verða enn ægilegri. Loftvogin féll stöðugt, öruggt merki þess, að enn var ekki hámarkinu náð. „Monaghan" var gott skip. Það var af nýjustu gerð, hraðskreytt og öruggt skip. En allar skipasmíðalistir eru bara mannaverk, og máttu sín hér ekkert á móti hamförum náttúruaflanna. Stálplöturnar voru sem pappír í samanburði við afl höfuðskepnanna. Sjúki stýrimaðurinn var nú hættur að hrópa. Kvalirnir höfðu stöðugt aukist við þennan ægilega sjógang og nú var hann orðinn meðvitundar- laus. Reimarnar, sem spenntar voru yfir hann, héldu honum föstum í kojunni. Meðvitundarleysið var miskunnarverk gagnvart honum. Lækn- irinn, sem vék ekki frá hlið hans, var nú sannfærðari en nokkru sinni fyrr um það, að það var ekki á mannanna valdi, að halda lífi í sjúklingnum. Það væri guðs gjöf, ef hann gæti skilið við þennan heim í meðvitundarleysi sínu. Allur flotinn, ásamt birgðaskipum, hafði orðið leiksoppur hafsins. Skip- herrar minni skipanna öfunduðu nú liina á þeim stærri. Stóru beitisnekkj- urnar, flugvélaskip og stór flutningaskip voru traustari, og þau voru það löng, að þau náðu oft á milli tveggja öldufjalla, og geistust því ekki í sí- fellu upp og niður eftir öldunum. Hins vegar komu aðrar tilfinning'ar á móti. Hve litlu skipin tóku öldu- fjöllin fallega! Fljót klifruðu þau upp, og glæsileg geistust þau niður hin- um megin. En brátt kom að því, að skipherrarnir á þessari eða hinni gerðinni gátu hætt að brjóta heilann um það, hver skipsgerðin verðist bezt hvirfil- vindunum. Þeir hættu bókstaflega alveg að sjá hver til annars. Meira að segja radarmyndunum varð ekki lengur treyst, því hvað gat skermurinn sýnt, þegar faldar brotsjóanna voru hærri en spegilloftnetin? í mörgum til- fellum varð radarinn fórn hafsins. Þeir voru ekki byggðir fyrir þá brot- 20 Nýtt S O S

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.